Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 360/2016"

1 dómar fundust

Landsréttur birt 27. mars 2020

393/2019

Friðrik Ingi Friðriksson (Ólafur Hvanndal Ólafsson lögmaður) gegn Kristni S. Jórmundssyni og Kristínu Margréti Matthíasdóttur (Skúli Sveinsson lögmaður)

KS og KM kröfðu F um skaðabætur eða afslátt vegna galla sem þau töldu vera á fasteign sem þau keyptu af F og byggðu þau kröfur sínar á 26. og 27. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup. Kröfur KS og KM snéru meðal annars að því að 146 fermetra lóðarskiki sem frá hafði verið greint í söluyfirliti að myndi fylgja eigninni hafði ekki reynst í eigu F og að ýmsum vanköntum á fasteigninni sem þau töldu að hefðu ekki samrýmst því ástandi hennar sem þau hefðu mátt gera ráð fyrir. Í dómi Landsréttar kom fram að í kaupsamningi hefði ekkert verið að finna um að F hafi selt KS og KM stærri lóð en útprentun úr fasteignaskrá bar með sér og þar voru engar upplýsingar um umrædda viðbótarlóð. Með hliðsjón af því og þar sem söluyfirlit með umræddum upplýsingum lá ekki fyrir þegar kaup tókust um eignina höfðu þau ekki réttmæta ástæðu til að ganga út frá því að viðbótarlóðin væri hluti af hinu keypta. Þá komst Landsréttur einnig að þeirri niðurstöðu að matsgerð dómkvaddra matsmanna sem aflað hafði verið undir rekstri málsins hefði að verulegu leyti verið reist á röngum eða ótraustum forsendum og var hún því ekki lögð til grundvallar við úrlausn málsins. Þar sem um grundvöll einstakra bótakrafna KS og KM vegna ætlaðra galla á fasteigninni var alfarið vísað til matsgerðarinnar og enga sjálfstæða lýsingu var að finna í stefnu á einstökum göllum og ætluðu tjóni vegna þeirra var talið að eins og málatilbúnaði þeirra væri háttað hefðu þau ekki sýnt fram á með öðrum hætti að fasteignin hefði verið haldin göllum sem F bæri skaðabótaábyrgð á. Samkvæmt því var F sýknaður af öllum kröfum KS og KM.

...Í c-lið greinarinnar, eins og ákvæðið var fyrir breytingar sem gerðar voru á því með reglugerð nr. 360/2016, sagði að framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi væru meðal annars viðhald bygginga...