Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 348/2002"
1 dómar fundust
Aflaheimildir. Aflahlutdeild. Fiskveiðistjórn. Stjórnarskrá. Jafnræðisregla. Vanreifun. Frávísun máls frá héraðsdómi að hluta. Ekki var fallist á með L að það hafi verið andstætt jafnræðisreglu stjórnarskrár að láta ákvörðun aflahlutdeildar í norsk-íslenska síldarstofninum ráðast af veiðireynslu sökum þess áskilnaðar að skip, sem hana mynduðu, hafi frá árinu 1996 þurft að hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni í fiskveiðilandhelgi Íslands. Þá þóttu ekki efni til að líta svo á að brotið væri gegn jafnræðisreglu með því að miða við veiðireynslu alls tímabilsins frá 1994 til og með 2001, við úthlutun veiðiheimilda úr stofninum, en ekki t.d. þriggja bestu veiðitímabila á undangengnum sex veiðitímabilum. Varakröfu L um ógildingu á úrskurði sjávarútvegsráðuneytisins, þar sem staðfest var ákvörðun Fiskistofu um að taka ekki mið af töfum skips L frá veiðum á árinu 2001 við úthlutun aflahlutdeildar, var svo vanreifuð af hendi L að óhjákvæmilegt var að vísa þeirri kröfu sjálfkrafa frá héraðsdómi.
...Nánari reglur voru settar um þetta í reglugerð nr. 348/2002. Með bréfi 7. maí 2002 tilkynnti Fiskistofa Kaupfélagi Fáskrúðsfirðinga um bráðabirgðaúthlutun aflamarks á því ári fyrir fiskiskipið Hoffell. Var...