Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 322/2001"

2 dómar fundust

Hæstiréttur birt 29. apríl 2021

40/2020

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Kristínu Valgerði Gallagher (Steingrímur Þormóðsson lögmaður)

K var sakfelld fyrir brot gegn 139. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa í opinberu starfi sínu sem landamæravörður ítrekað flett upp tveimur tilgreindum einstaklingum í LÖKE-lögreglukerfinu og skoðað þar upplýsingar um þau og lögreglumál þeim tengd án þess að uppflettingarnar hefðu tengst starfi hennar. Í dómi Hæstaréttar kom fram að K hefði misnotað sér stöðu sína sem opinber starfsmaður og hallað réttindum þeirra sem upplýsingaöflunin hefði beinst að. Ásetningur hennar hefði staðið til þess að afla sér upplýsinga um tilgreinda einstaklinga og þannig misnota sér aðstöðu sína og skipti þá að öðru leyti engu hvort hún hefði um leið búið yfir ásetningi til þess að brjóta með þeirri háttsemi gagngert gegn réttindum einstakra manna samkvæmt 139. gr. almennra hegningarlaga. Var K gert að greiða 100.000 króna sekt í ríkissjóð innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins en sæta ella átta daga fangelsi í stað sektarinnar.

...Reglur um rafræna vinnslu upplýsinga hjá lögreglu voru jafnframt ítarlega útfærðar í reglugerð nr. 322/2001 um meðferð persónuupplýsinga hjá lögreglu. Ákærða hefur játað að hafa flett þessum einstaklingum upp...

Landsréttur birt 3. október 2019

652/2019

Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) og Y (Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Rannsókn. Gögn.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem kröfum ákærðu um afhendingu gagna sem orðið hafi til undir rannsókn máls á hendur þeim var hafnað.

...Hvað varðar kröfu um að verjendum ákærðu verði afhentar dagbókarfærslur lögreglu og þær lagðar fram þá koma upplýsingar um hlutverk dagbókar lögreglu fram í reglugerð nr. 322/2001 um meðferð...