Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 321/1999"
2 dómar fundust
Ákæruvaldið (
Sigríður Jósefsdóttir saksóknari)
gegn
Gunnari Gunnarssyni (
Sigurður Georgsson hrl)
G var ákærður fyrir kynferðisbrot með því að hafa í skála Útivistar í Básum í Þórsmörk þuklað stúlkuna X, fædda árið 1989, innanklæða á baki, maga og nálægt kynfærum. Var brotið talið varða við síðari málslið 1. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 10. gr. laga nr. 40/1992. G krafðist þess aðallega að héraðsdómur yrði ómerktur og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar. Til vara krafðist hann sýknu. Var ómerkingarkrafa G byggð á því að skýrslutaka af X í Barnahúsi hefði ekki verið í samræmi við meginreglur réttarfars. Ekkert var talið hafa komið fram sem benti til annars en að umrætt þinghald í héraði og skýrslutaka hefði verið í fullu samræmi við ákvæði laga um meðferð opinberra mála og reglur settar samkvæmt þeim. Því þóttu ekki efni til að taka til greina kröfu ákærða um ómerkingu og heimvísun héraðsdóms. Þá var talið sannað að G hefði áreitt X umrætt sinn með þeim hætti sem greindi í ákæru. Var hann dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða X 250.000 krónur í miskabætur.
...Samkvæmt lokamálslið málsgreinarinnar skal dómsmálaráðherra setja nánari ákvæði í reglugerð um tilhögun skýrslutöku samkvæmt þessu ákvæði og gildir um þetta reglugerð nr. 321/1999 um tilhögun skýrslutöku fyrir dómi af...
Lögreglustjórinn í Reykjavík gegn
X
Skipaður réttargæslumaður stúlkunnar B, sex ára, kærði úrskurð héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu hennar um að dómþing til að taka skýrslu, sem lögreglan krafðist að B gæfi sem brotaþoli við rannsókn máls, yrði háð í Barnahúsi. Talið var að ekki væru efni til að hnekkja því mati héraðsdómara að húsnæði Héraðsdóms Reykjavíkur, sem sérstaklega væri útbúið til að taka skýrslur af börnum, fullnægði kröfum 5. gr. reglugerðar nr. 321/1999 um tilhögun skýrslutöku fyrir dómi af brotaþola yngri en 18 ára og markmiðum rannsóknar opinbers máls. Var úrskurður héraðsdómara því staðfestur.
...í öllu tilliti þeim skilyrðum, sem sett eru í slíkri sérútbúinni aðstöðu í reglugerð nr. 321/1999 um tilhögun skýrslutöku fyrir dómi af brotaþola yngri en 18 ára. Er mælst...