Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 320/2012"
2 dómar fundust
K ehf. krafðist þess að viðurkenndur yrði réttur sinn til skaðabóta vegna tilkynningar sem M hafði birt á heimasíðu sinni um niðurstöður rannsóknar á kjötinnihaldi íslenskra matvara. Hafði M m.a. keypt eina pakkningu með tveimur nautabökum frá K ehf. og hafði rannsókn á þeim leitt í ljós að ekkert kjöt var í bökunum. Kom sú niðurstaða fram í umræddri tilkynningu, sem birt var á heimasíðu M. Í dómi Hæstaréttar kom fram að ljóst væri af ákvæðum laga nr. 93/1995 um matvæli og reglugerðum settum samkvæmt lögunum, að það hefði verið á verksviði Heilbrigðiseftirlits Vesturlands að annast um eftirlit með framleiðslu og dreifingu K ehf. á matvælum. Þá hefði það verið sami eftirlitsaðili sem hefði haft heimild til þess að birta niðurstöður úr slíku eftirliti. Hefði M því brostið heimild að lögum til þess að standa að birtingu tilkynningarinnar, sem hefði samkvæmt því verið ólögmæt. Þá hefði M borið að gæta þess að rannsóknin á vörum K ehf. yrði hagað í samræmi við meginreglur stjórnsýsluréttarins og þess m.a. gætt að fullnægjandi rannsókn færi fram og þar með útilokað að um einstaka mistök eða óhappatilvik væri að ræða. Hefði rannsókn á innihaldi einnar pakkningar af nautabökum K ehf. ekki getað talist fullnægjandi grundvöllur þeirrar opinberu upplýsingamiðlunar um framleiðslu K ehf. sem átti sér stað í framhaldinu og hefði a.m.k. mátt gera þá kröfu að slík rannsókn yrði endurtekin með frekari sýnatöku áður en almenningi væri kynnt að umrædd vara K ehf. væri haldin þeim ágalla sem fullyrt var. Hefði meðferð málsins samkvæmt því einnig verið haldin slíkum annmörkum af hálfu starfsmanna M að skilyrðinu um saknæmi væri jafnframt fullnægt.Var niðurstaða héraðsdóms um viðurkenningu á skaðabótaskyldu M því staðfest.
...93/1995 hefur ráðherra sett reglugerð nr. 320/2012 um birtingu niðurstaðna vegna eftirlits með matvælum. Kemur fram í 2. gr. hennar að eftirlitsaðila samkvæmt 22. gr. laga nr. 93...
Krafist var viðurkenningar á skaðabótaskyldu stefnda, Matvælastofnunar, vegna tjóns sem stefnandi, Kræsingar ehf., varð fyrir vegna tilkynningar sem birt var af stefnda á heimasíðu hans 27. febrúar 2013 um framleiðslu stefnanda. Fallist var á kröfuna.
...sérstaka heimild fyrir opinbera eftirlitsaðila til að upplýsa almenning við nánar skilgreindar aðstæður. Reglugerð nr. 320/2012, um birtingu niðurstaðna vegna eftirlits með matvælum, byggi á þessum grundvelli. Aðrar heimildir...