Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 286/2010"
2 dómar fundust
Ú, sem átti aflahlutdeild í skötusel, krafðist þess að viðurkennt yrði að Í bæri skaðabótaábyrgð á tjóni sem félagið taldi sig hafa orðið fyrir vegna ólögmætrar úthlutunar á aflamarki í þeirri fisktegund fiskveiðiárin 2009/2010, 2010/2011 og 2011/2012. Með nánar tilteknum breytingarlögum var bætt við lög nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða bráðabirgðaákvæðum sem heimiluðu ráðherra úthlutun á aflaheimildum í skötusel umfram heildarafla sem úthlutað hafði verið samkvæmt 3. gr. laganna. Taldi Ú að lagasetningin og framkvæmd á grundvelli hennar hefði brotið gegn rétti sínum, sem varinn væri af 1. mgr. 72. gr. og 1. mgr. 75. gr. stjórnarskrárinnar, til að fá úthlutað án endurgjalds aflamarki af viðbótarveiðiheimildunum í samræmi við aflahlutdeild sína í skötusel. Í dómi Hæstaréttar kom fram að með framangreindri viðbótarúthlutun á aflamarki hefði ekki falist breyting á hlutdeild Ú í afla sem úthlutað var eftir 3. gr. laga nr. 116/2006. Hefði Ú því ekki sætt takmörkunum með þeim breytingarlögum sem um ræddi þannig að farið hefði gegn 72. eða 75. gr. stjórnarskrárinnar. Var Í þegar af þeirri ástæðu sýknað af kröfu Ú.
...22/2010 þar til ráðherra gaf út reglugerð nr. 286/2010 feli ekki í sér brot ráðherra gegn meginreglum stjórnsýsluréttarins. Þá hafði löggjafinn tekið þá afstöðu við setningu laga nr...
Stefndi, íslenska ríkið, sýknað af kröfu stefnanda um viðurkenningu á bótaskyldu vegna viðbótar úthlutunar aflaheimilda til veiða á skötusel. Þá var talið ósannað að orsakatengsl hefðu verið á milli úthlutunar viðbótaraflaheimilda og samdráttar í úthlutuðum heildarafla. Var stefndi því sýknaður af kröfu stefnanda um viðurkenningu á bótaskyldu vegna missis hagnaðar sem hann taldi sig hafa orðið fyrir í því sambandi.
...22/2010 þar til ráðherra gaf út reglugerð nr. 286/2010 feli ekki í sér brot ráðherra gegn meginreglum stjórnsýsluréttarins. Þá hafði löggjafinn tekið þá afstöðu við setningu laga nr...