Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 236/1990"

4 dómar fundust

Hæstiréttur birt 31. maí 2012

598/2011

Íslenska ríkið (Óskar Thorarensen hrl) gegn Halldóru Jóhannsdóttur (Björn Lárus Bergsson hrl)

H krafði Í og A um skaðabætur vegna líkamstjóns sem hún taldi sig hafa orðið fyrir vegna ófullnægjandi aðbúnaðar á vinnustað sínum á rannsóknarstofu þar sem hún starfaði fyrst hjá Í og síðar hjá A. Héraðsdómur féllst á kröfu H og dæmdi Í og A óskipt til að greiða henni skaðabætur vegna tjónsins. Fyrir Hæstarétti kom einungis til endurskoðunar krafa H á hendur Í. Í dómi Hæstaréttar kom meðal annars fram að fallist væri á það með héraðsdómi að Í hefði sýnt af sér saknæma og ólögmæta háttsemi með því að láta H vinna við svokallaða ætagerð án persónuhlífa fyrir öndunarfæri í húsnæði sem ekki hefði verið nægjanlega loftræst. Taldi Hæstiréttur að Í bæri óskipta ábyrgð með A á tjóni H þrátt fyrir að starfstími hennar hjá hvorum aðila um sig hefði verið mismunandi. Var Í því gert að greiða H skaðabætur. Var Í gert að greiða H vexti fjögur ár aftur í tímann frá birtingu framhaldsstefnu í málinu þar sem birting stefnu af hálfu H þar sem krafist var viðurkenningar á bótaskyldu Í taldist ekki nægjanleg til þess að rjúfa fyrningu vaxtakröfunnar.

...desember 2007 sé að finna töflu þar sem útlistað sé hversu mörg þeirra efna sem stefnandi vann með eigi undir reglugerð nr. 236/1990 um flokkun, meðferð og merkingu eiturefna...

Héraðsdómur Vestfjarða birt 10. ágúst 2011

E-170/2009

Halldóra Jóhannsdóttir (Magnús H. Magnússon hdl) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen hdl) og Agar ehf. (Björn Jóhannesson hrl)

Stefndu dæmd til greiðslu skaðabóta vegna tjóns sem talið var sannað að stefnandi hefði orðið fyrir vegna starfa sinna hjá stefndu.

...desember 2007 sé að finna töflu þar sem útlistað sé hversu mörg þeirra efna sem stefnandi vann með eigi undir reglugerð nr. 236/1990 um flokkun, meðferð og merkingu eiturefna...

Hæstiréttur birt 8. október 2009

65/2009

Björgvin Pálmar Jónsson (Steingrímur Þormóðsson hrl) gegn Samskipum hf (Lilja Jónasdóttir hrl)
Lykilorð: Vinnuslys. Líkamstjón.

B krafði S hf. um bætur vegna slyss sem hann hafði orðið fyrir er hann vann sem umsjónarmaður á bílaþvottastöð S hf. Var B við vinnu sína er dæla, sem sá um að dæla olíuhreinsivökva úr tanki fyrir utan þvottastöðina og inn á þvottavél, stóð á sér. Til þess að koma dælunni af stað og tæma loft sem þar myndaðist tók B slönguna í sundur og tók að sjúga vökvann upp til að koma henni í gang aftur. Er dælan tók við sér hætti B að sjúga en var ekki nægilega fljótur að skrúfa slönguna saman aftur og spýttist olíuhreinsivökvinn yfir hann og fór talsvert magn ofan í B sem varð fyrir varanlegum skaða vegna þessa. Talið var að B hefði að eigin frumkvæði tekið ákvörðun um að taka slönguna í sundur og sjúga vökvann upp. Yrði slysið ekki rekið til skyndilegrar bilunar í dælunni heldur til vinnulags hans. Hefði B, sem áður hafði unnið á vélaverkstæði S hf. í um 6 ár, mátt gera sér grein fyrir þeirri áhættu sem hann tók í umrætt sinn. Yrði slysið því rakið til óaðgæslu af hans hálfu en ekki til atvika er vörðuðu S hf. Var S hf. því sýknað af kröfu B.

...sbr. einnig ákvæði laga nr. 52/1988 um eiturefni og hættuleg efni sbr. reglugerð nr. 236/1990 um meðferð eiturefna. 2.Eigin sök stefnanda Verði ekki fallist á sýknu stefnda...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. júní 2007

E-4716/2007

Björgvin Pálmar Jónsson (Steingrímur Þormóðsson hrl) gegn Samskipum hf (Lilja Jónasdóttir hrl)
Lykilorð: Skaðabætur.

Stefnandi höfðaði mál á hendur vinnuveitanda sínum til greiðslu skaðabóta vegna slyss sem hann varð fyrir við vinnu sína. Talið var að slysið væri að rekja til óaðgætni stefnanda og var stefndi sýknaður af kröfum hans.

...sbr. einnig ákvæði laga nr. 52/1988 um eiturefni og hættuleg efni sbr. reglugerð nr. 236/1990 um meðferð eiturefna. 2.Eigin sök stefnanda Verði ekki fallist á sýknu stefnda...