Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 206/1984"

2 dómar fundust

Hæstiréttur birt 7. júní 2012

535/2011

Reykjavíkurborg (Kristbjörg Stephensen hrl) gegn Brimborg ehf (Tómas Jónsson hrl, Hlynur Halldórsson hdl)

B ehf. höfðaði mál gegn sveitarfélaginu R og var fyrir Hæstarétti leyst úr kröfu B ehf. er laut að því að R greiddi því tiltekna fjárhæð gegn því að fyrirtækið skilaði lóð undir atvinnuhúsnæði sem R hafði úthlutað. Ekki var fallist á með B ehf. að samkvæmt skilmálum R hefði fyrirtækið átt einhliða rétt á að skila lóðinni gegn endurgreiðslu lóðagjalda. Þá var hvorki fallist á að slíkur réttur hefði verið til staðar á grundvelli venjuhelgaðrar framkvæmdar R né að bréf frá R til B ehf. hefði leitt af sér réttmætar væntingar B ehf. um að það gæti hvenær sem væri og án tillits til aðstæðna tekið einhliða ákvörðun um skil á lóðinni gegn endurgreiðslu lóðagjalda.

...543/1996 um gatnagerðargjald en auk þess hafi verið fjallað um hann í brottfallinni reglugerð nr. 206/1984 um gatnagerðargjöld í Reykjavík. Í a-lið 1. mgr. 9. gr. reglugerðar...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. júlí 2011

E-5553/2010

Brimborg ehf (Tómas Jónsson hrl) gegn Reykjavíkurborg (Kristbjörg Stephensen hrl)

Fallist var á kröfu stefnanda um að stefndu Reykjavíkurborg bæri að endurgreiða honum gjöld, sem hann hafði greitt borginni í tengslum við úthlutun á atvinnuhúsalóð, gegn því að stefnandi skilaði borginni lóðinni. Talið var stefnandi hafi haft réttmætar væntingar til þess að úthlutunin gengi til baka við einhliða yfirlýsingu hans um skil á lóðinni í samræmi við fyrri stjórnsýsluframkvæmd og að Reykjavíkurborg hafi borið að taka tillit til þess þegar afstaða var tekin til gildissviðs breyttrar framkvæmdar.

...543/1996 um gatnagerðargjald en auk þess hafi verið fjallað um hann í brottfallinni reglugerð nr. 206/1984 um gatnagerðargjöld í Reykjavík. Í a-lið 1. mgr. 9. gr. reglugerðar...