Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 192/1993"
4 dómar fundust
Með úrskurðum ríkisskattstjóra og yfirskattanefndar var V ehf. endurákvarðaður áður álagður virðisaukaskattur og höfðaði félagið mál þetta meðal annars í því skyni að fá úrskurðina ógilta. Í málinu deildu V ehf. og Í um það hvernig túlka bæri það orðalag 2. málsliðar 1. mgr. 16. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt að skilyrði innskattsfrádráttar væri að seljandi væri „skráður á virðisaukaskattsskrá“ á því tímamarki þegar viðskipti áttu sér stað. Óumdeilt var í málinu að viðsemjandi V ehf. hefði ekki verið með opið virðisaukaskattsnúmer þegar innsköttun átti sér stað, en deilt var um hvort hann hefði verið skráður á virðisaukaskattsskrá. Fallist var á það með V ehf. að framsetning ákvæðisins væri ekki að öllu leyti eins skýr og æskilegt væri, einkum með hliðsjón af því að lokun virðisaukaskattnúmers og afskráning af virðisaukaskattskrá þyrfti ekki að fara saman í öllum tilvikum. Á hinn bóginn var í dómi Hæstaréttar rakið að lögskýringargögn bæru með sér að tilætlan löggjafans með umræddu ákvæði hafi verið að bregðast við þeim tilvikum þegar skattaðili hefði talið virðisaukaskatt til innskatts án þess að viðsemjandi hans hefði verið með opið virðisaukaskattsnúmer eða jafnvel aldrei skráður á virðisaukaskattsskrá. Þá könnun sem tilvitnuð lagaregla ráðgerði að skattaðili framkvæmdi væri hægt að uppfylla með einfaldri skoðun á upplýsingavef ríkisskattstjóra. Með hliðsjón af þessu hefði fyrirsvarsmönnum V ehf. ekki getað dulist, að undangenginni slíkri könnun, að viðsemjandi þeirra væri ekki með opið virðisaukaskattsnúmer á þeim tíma þegar umrædd viðskipti áttu sér stað. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur um sýknu Í.
...50/1993 um bókhald og tekjuskráningu virðisaukaskattskyldra aðila og reglugerð nr. 192/1993 um innskatt. Þá hafi hann farið að hefðbundnu verklagi við virðisaukaskattsskil og uppgjör. Honum sé því heimilt...
Skattamál.
...50/1993 um bókhald og tekjuskráningu virðisaukaskattskyldra aðila og reglugerð nr. 192/1993 um innskatt. Þá hafi hann farið að hefðbundnu verklagi við virðisaukaskattsskil og uppgjör. Honum sé því heimilt...
Félagið K keypti bifreið til notkunar í þágu atvinnurekstrar síns og fékk endurgreiddan innskatt af kaupverði hennar. Sást í þrígang til bifreiðarinnar, þar sem henni var lagt að næturlagi utan við náttstað sölumanns hjá K. Vegna þessa var virðisaukaskattur og álag vegna bifreiðarinnar endurákvarðað. Höfðaði K mál á hendur íslenska ríkinu vegna þessa. Talið var að reglugerð nr. 192/1993 um innskatt ætti nægjanlega lagastoð í 16. gr., sbr. 49. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt. Var talið ósannað að nauðsynlegt hefði verið, vegna reksturs og aðbúnaðar á starfsstöð K, að hafa bifreiðina fyrir utan aðsetursstað sölumanns að næturlagi. Var niðurstaða héraðsdóms um að sýkna ríkið af kröfum K staðfest.
...Talið var að reglugerð nr. 192/1993 um innskatt ætti nægjanlega lagastoð í 16. gr., sbr. 49. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt. Var talið ósannað að nauðsynlegt hefði...
X var ákærður og dæmdur fyrir misneytingu með því að hafa fengið Á, konu um áttrætt, til að taka mikið fé út af reikningi sínum og ráðstafa til sín, auk þess að fá hana til að ráðstafa veðskuldabréfi í sína þágu og undirrita erfðaskrá þess efnis að skuldir hans við hana skyldu falla niður við andlát hennar. Var X ákveðin fangelsisrefsing. Ekki var fallist á kröfu um ómerkingu héraðsdóms sem reist var á því að héraðsdómur hefði átt að vera fjölskipaður og konan hefði átt að koma fyrir dóminn, en til þess var hún ekki talin fær af heilsufarslegum ástæðum.
...Var þá í gildi reglugerð nr. 192/1993 um innskatt, með þeim breytingum, sem gerðar höfðu verið á henni með reglugerð nr. 532/1993, en umrædd reglugerð (nr. 192/1993...