Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 179/1999"

1 dómar fundust

Hæstiréttur birt 18. nóvember 2004

221/2004

Íslenska ríkið (Einar Karl Hallvarðsson hrl, Sigurður R. Arnalds hdl) gegn Loðnuvinnslunni hf (Kristján Þorbergsson hrl, Jóhannes Bjarni Björnsson hdl)

Aflaheimildir. Aflahlutdeild. Fiskveiðistjórn. Stjórnarskrá. Jafnræðisregla. Vanreifun. Frávísun máls frá héraðsdómi að hluta. Ekki var fallist á með L að það hafi verið andstætt jafnræðisreglu stjórnarskrár að láta ákvörðun aflahlutdeildar í norsk-íslenska síldarstofninum ráðast af veiðireynslu sökum þess áskilnaðar að skip, sem hana mynduðu, hafi frá árinu 1996 þurft að hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni í fiskveiðilandhelgi Íslands. Þá þóttu ekki efni til að líta svo á að brotið væri gegn jafnræðisreglu með því að miða við veiðireynslu alls tímabilsins frá 1994 til og með 2001, við úthlutun veiðiheimilda úr stofninum, en ekki t.d. þriggja bestu veiðitímabila á undangengnum sex veiðitímabilum. Varakröfu L um ógildingu á úrskurði sjávarútvegsráðuneytisins, þar sem staðfest var ákvörðun Fiskistofu um að taka ekki mið af töfum skips L frá veiðum á árinu 2001 við úthlutun aflahlutdeildar, var svo vanreifuð af hendi L að óhjákvæmilegt var að vísa þeirri kröfu sjálfkrafa frá héraðsdómi.

...Samkvæmt reglugerð nr. 179/1999, um stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum árið 1999, var leyfilegur heildarafli 202.000 lestir það ár og var þessum veiðiheimildum úthlutað á einstök skip...