Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 178/2018"
2 dómar fundust
Verulegir annmarkar þóttu vera á málsmeðferð kærunefndar útboðsmála og var úrskurður nefndarinnar felldur úr gildi að því leyti að hann kvað á um stjórnvaldsekt, að bjóða skildi út tiltekin innkaup og greiðslu málskostnaðar. Ekki voru taldar forsendur til þess að kærandi gæti aukið við kröfugerð sína og breytt henni með þeim hætti að kærunefnd útboðsmála hafi fallist á og þannig lagt málið í annan farveg en upphaflega kæra gaf tilefni til. Þá var talið að kærunefndinni hefði borið að vísa málinu frá nefndinni þar sem kærufrestur hefði verið liðinn er kærandi lagði fram upprunalega kæru sína. Auk þess hefði kærunefndin ekki tekið afstöðu til þess hvort fjárhæð þeirra viðskipta sem upphafleg kröfugerð kæranda laut að væri undir viðmiðunarfrjárhæðum þótt sterkar vísbendingar væru í þá veru. Þá var vísað frá dómi kröfum en vörðuðu ákvörðun kærunefndar útboðsmála um frávísun á hluta krafna kæranda.
...Viðmiðunarfjárhæðirnar hafi verið 15.500.000 krónur fyrir vöru- og þjónustusamninga samkvæmt öllum reglugerðunum, 18.734.400 krónur um útboð á Evrópska efnahagssvæðinu samkvæmt reglugerð nr. 178/2018 en 18...
Úrskurðar kærunefndar útboðsmála felldur úr gildi. Stjórnvaldssekt sem kærunefndin lagði á kaupanda ekki talin hafa lagastoð.
...Þegar kaupin áttu sér stað hafi gilt reglugerð nr. 178/2018 um auglýsingu innkaupa á útboðsvef, viðmiðunarfjárhæðir vegna opinberra innkaupa og innkaup samkvæmt samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um opinber inn- kaup...