Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 165/2011"

2 dómar fundust

Landsréttur birt 10. febrúar 2023

730/2021

B ehf (Ólafur Lúther Einarsson lögmaður) gegn A (Fjölnir Vilhjálmsson lögmaður)

A höfðaði mál til viðurkenningar á skaðabótaskyldu vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir í starfi sínu hjá B ehf. er hann gekk á nánar tilgreinda súlu í verslunarrými B ehf. Í dómi Landsréttar var fallist á með A að vegna staðsetningar súlunnar, þess hversu mjó hún væri og vegna litar hennar félli hún inn í umhverfi sitt þannig að hún gæti auðveldlega dulist þeim sem leið ættu um rýmið og sérstaklega frá því sjónarhorni sem horfði við A í umrætt sinn. Var til þess vísað að hættan á árekstri við súluna í umræddu rými hefði verið fyrirsjáanleg og að B ehf. hefði getað án mikillar fyrirhafnar dregið úr þeirri hættu eða komið í veg fyrir hana með almennum varúðarráðstöfunum, svo sem með því að stilla upp varningi við hlið súlunnar, setja upp skilrúm umhverfis hana eða gera súluna sýnilegri með merkingum eða öðrum lit. Féllst Landsréttur því á það með A að B ehf. hefði sem atvinnurekandi, sbr. 13. gr. laga nr. 46/1980, vanrækt að tryggja stefnda öruggt vinnuumhverfi, sbr. 1. og 2. mgr. 42. gr. laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og 1. og 3. mgr. 3. gr. og 1. mgr. 39. gr. reglna nr. 581/1995 um húsnæði vinnustaða. Var krafa A því tekin til greina.

...74 Þótt reglugerð nr. 165/2011 eigi ekki við hér, þá má eigi að síður draga þá almennu ályktun af tilvísun í reglugerðinni til nefnds staðals, að efni staðalsins sé...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. nóvember 2021

E-4068/2020

A (Steingrímur Þormóðsson lögmaður) gegn X og Vátryggingafélagi Íslands hf. til réttargæslu

Fallist á að atvinnurekandi beri ábyrgð á tjóni starfsmanns vegna vinnuslyss.

...74 Þótt reglugerð nr. 165/2011 eigi ekki við hér, þá má eigi að síður draga þá almennu ályktun af tilvísun í reglugerðinni til nefnds staðals, að efni staðalsins sé...