Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 164/2017"

3 dómar fundust

Hæstiréttur birt 4. maí 2020

50/2019

Hróðgeir hvíti ehf (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir lögmaður)

Í málinu krafðist H ehf. viðurkenningar á skaðabótaskyldu Í vegna fjártjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir með því að hafa ekki notið tekna af áframhaldandi veiðum þegar veiðidögum á grásleppuvertíðinni 2017 var fjölgað um 10 daga með reglugerð nr. 374/2017. Reglugerðin tók gildi eftir að H ehf. hafði hætt grásleppuveiðum þar sem leyfilegt veiðitímabil hans var liðið og sótt um leyfi til strandveiða. Hæstiréttur taldi nægilega komið fram að nokkurt óhagræði hefði verið af því fyrir H ehf. og aðra þá sem voru í sömu stöðu að hefja aftur grásleppuveiðar eftir að þeim hefði verið hætt. Til þess væri að líta að stjórnvöld hefðu gripið til ýmissa úrræða til að koma til móts við þá sem fengið hefðu leyfi til grásleppuveiða og draga eftir mætti úr röskun á innbyrðis jafnræði þeirra á milli. Hefði meðal annars verið bætt við reglugerðina ákvæði til bráðabirgða þar sem bátum, sem hætt hefðu veiðum og tekið upp net sín áður en veiðidögum var fjölgað, var heimilað að hefja veiðar að nýju þrátt fyrir 3. gr. reglugerðar nr. 164/2017 um samfelldar veiðar, auk þess sem Fiskistofa hefði tilkynnt að fresta mætti upphafsdegi strandveiða. Var vísað til þess að þótt vafi kynni að hafa leikið á heimild Fiskistofu til að leyfa grásleppuveiðar í slíkum tilvikum hefði H ehf. getað sér að vítalausu haldið til veiða enda hefði hann ekki getað fengið úr því álitaefni skorið fyrirfram. Komst rétturinn að þeirri niðurstöðu að fjölgun veiðidaga með fyrrnefndri reglugerð hefði ekki farið í bága við lög. Skorti því á að fullnægt væri skilyrði sakarreglunnar um ólögmæta háttsemi Í svo bótaábyrgð yrði felld á Í. Þegar af þeirri ástæðu var hinn áfrýjaði dómur staðfestur.

...374/2017, um breytingu á reglugerð nr. 164/2017. Veiðitímabilið, sem hafði í reglugerð nr. 164/2017 verið tilgreint frá 20. mars til 2. júní 2017, var þá jafnframt framlengt...

Landsréttur birt 25. október 2019

802/2018

Hróðgeir hvíti ehf (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir lögmaður)

H naut leyfa til grásleppuveiða fyrir tvö fiskiskip sín árið 2017. Voru leyfin gefin út á grundvelli 2. gr. reglugerðar nr. 164/2017 um hrognkelsaveiðar það ár til „20 samfelldra daga í upphafi, þar til ákvörðun um heildarfjölda daga“ yrði tekin. Með reglugerð nr. 290/2017 frá 4. apríl 2017 var veiðidögum til grásleppuveiða fjölgað úr 20 í 36 og úr 36 í 46 með reglugerð nr. 374/2017 frá 3. maí 2017. Er síðastnefnd reglugerð tók gildi hafði H hætt grásleppuveiðum og sótt um leyfi til strandveiða. Í kjölfarið höfðaði H mál á hendur Í og krafðist þess að viðurkennd yrði skaðabótaskylda Í vegna tjóns sem H hefði orðið fyrir vegna setningar reglugerðar nr. 374/2017. Krafa H byggðist á því að vegna þess hversu seint reglugerðin var gefin út hafi honum í reynd verið ómögulegt að hefja veiðar á ný, meðal annars vegna þess að leyfi hans til strandveiða hefði verið gefið út með þeim afleiðingum að honum hafi verið óheimilt samkvæmt lögum að hefja grásleppuveiðar á ný, sbr. 4. mgr. 6. gr. a laga nr. 116/2006. Hefði honum verið mismunað með ólögmætum hætti þar sem ýmsir aðrir sem ekki höfðu lokið veiðum þegar reglugerðin var gefin út hefðu getað haldið veiðunum áfram. Héraðsdómur sýknaði Í af kröfum H. Fyrir Landsrétti krafðist H þess aðallega að dómur héraðsdóms yrði ómerktur og málinu vísað heim í hérað þar sem þörf hefði verið á sérfróðum meðdómsmanni. Landsréttur féllst ekki á þá kröfu þar sem um þau atriði sem H vísaði til reyndi fyrst og fremst á sönnunarreglur og aðra þekkingu sem dómari byggi yfir. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að legið hefði fyrir við útgáfu leyfanna að heildarfjöldi veiðidaga kynni að breytast á tilgreindu veiðitímabili og af ákvæðinu yrði ekki ráðið að slík breyting gæti eingöngu átt sér stað í eitt skipti. Þá hafi með reglugerð 374/2017 verið bætt við reglugerð nr. 164/2017 bráðabirgðaákvæði þar sem fram kom að þeim bátum sem hefðu hætt veiðum eða tekið upp net sín fyrir gildistöku reglugerðarinnar væri heimilt að hefja veiðar að nýju þrátt fyrir ákvæði 3. gr. um samfelldar veiðar. H hefði því verið heimilt að hefja grásleppuveiðar á ný. Loks var ekki fallist á að ákvæði 4. mgr. 6. gr. a laga nr. 116/2006 hefði staðið í vegi fyrir því að H gæti óskað eftir fresti á gildistöku strandveiðileyfisins á meðan hann stundaði grásleppuveiðar í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 374/2017. Var niðurstaða héraðsdóms um sýknu Í því staðfest.

...374/2017, um breytingu á reglugerð nr. 164/2017. Veiðitímabilið, sem hafði í reglugerð nr. 164/2017 verið tilgreint frá 20. mars til 2. júní 2017, var þá jafnframt framlengt...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. október 2018

E-2962/2017

Hróðgeir hvíti ehf (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir lögmaður)
Lykilorð: Skaðabótamál.

Í sýknað af bótakröfu H þar sem ekki þótti hafa verið sýnt fram á að H hefði orðið fyrir tjóni sökum atvika sem Í bæri ábyrgð á.

...febrúar 2017 setti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra reglugerð nr. 164/2017, þar sem ákveðið var að fjöldi leyfilegra veiðidaga á grásleppuveiðileyfi hvers fiskiskips skyldi vera 20 samfelldir dagar fyrir vertíðina 2017...