Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 160/2006"

5 dómar fundust

Hæstiréttur birt 16. maí 2012

527/2011

Gunnar Júlíus Jónsson (Gunnar Sólnes hrl) gegn Vegagerðinni (Hreinn Loftsson hrl)
Lykilorð: Skaðabótaskylda.

Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 28. september 2011. Hann krefst þess að stefndi verði dæmdur til að greiða sér 10.065.260 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af 8.318.027 krónum frá 24. desember 2009 til 3. október 2010, en af 10.065.260 krónum frá þeim degi til greiðsludags, allt að frádreginni innborgun, 417.793 krónur, sem greidd hafi verið áfrýjanda 29. desember 2007. Þá krefst hann málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti. Stefndi krefst aðallega staðfestingar hins áfrýjaða dóms um annað en málskostnað, en til vara lækkunar á kröfum áfrýjanda. Í báðum tilvikum krefst hann málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti. Stefndi hefur ekki áfrýjað héraðsdómi fyrir sitt leyti. Krafa hans um endurskoðun á ákvæði héraðsdóms um málskostnað kemur því ekki til meðferðar fyrir Hæstarétti.

...Þá kveðst stefnda benda á, að samkvæmt reglugerð nr. 160/2006 um aðbúnað hrossa megi viðvarandi hljóðstig innan hesthúss ekki fara yfir 65 dB, sem sé umtalsvert meira en leyft...

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 29. júní 2011

E-346/2010

Gunnar Júlíus Jónsson (Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson hdl) gegn Vegagerðinni (Einar Farestveit hdl)
Lykilorð: Skaðabætur.

Stefnandi, hestamaður í Ólafsfirði, krafði Vegagerðina um bætur vegna tjóns sem hann hefði orðið fyrir þar sem hesthúsahverfi Ólafsfirðinga hefði orðið ónothæft á meðan á framkvæmdum við Héðinsfjarðargöng hefði staðið, en húsin standa skammt frá gangamunna. Vegagerðin samdi við félag hestamanna á svæðinu um bætur vegna framkvæmdanna og fékk stefnandi greidda nokkra fjárhæð vegna þessa, en hann kvaðst ekki eiga aðild að samkomulaginu og líta á greiðsluna sem innborgun á kröfu sína. Ekki var talið sannað að stefnandi hefði orðið fyrir meira tjóni en hann hefði þegar fengið bætt, og var sýknað af kröfum hans.

...Þá kveðst stefnda benda á, að samkvæmt reglugerð nr. 160/2006 um aðbúnað hrossa megi viðvarandi hljóðstig innan hesthúss ekki fara yfir 65 dB, sem sé umtalsvert meira en leyft...

Héraðsdómur Norðurlands vestra birt 20. janúar 2010

S-113/2010

Ákæruvaldið (Björn Hrafnkelsson fulltrúi) gegn Guðmundi Víði Magnússyni (Ingi Tryggvason hdl)
Lykilorð: Dýravernd. Sönnun.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn lögum um dýravernd.

...Þar má sjá að Ingunn Reynisdóttir dýralæknir taldi holdastig hestsins hafi verið á milli 1,5+ og 2 eins og holdastig hrossa er metið í viðauka C við reglugerð nr...

Héraðsdómur Suðurlands birt 30. október 2009

S-59/2009

Ákæruvaldið (Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður) gegn Óla Pétri Gunnarssyni (Óskar Sigurðsson hrl)
Lykilorð: Dýravernd.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir illa meðferð á hrossum auk brots á reglugerð um heyflutninga.

...Fram kemur að við holdastigun, sem fram hafi farið í greind sinn samkvæmt reglugerð nr. 160/2006 um aðbúnað, umhirðu og heilbrigðiseftirlit hrossa, hafi fjögur hross fengið holdastigun á bilinu...

Héraðsdómur Suðurlands birt 22. nóvember 2006

S-221/2006

Ákæruvaldið (Ólafur Helgi Kjartansson) gegn Óla Pétri Gunnarssyni (Helgi Jóhannsson hrl)
Lykilorð: Dýravernd.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ó sakfelldur fyrir illa meðferð á hrossum og dæmdur til að greiða 700.000.- krónur í sekt auk sakarkostnað.

...Í reglugerð nr. 160/2006 í viðauka lið c segir að holdastig 1 til 2 teljist til illrar meðferðar og varði við dýraverndarlög. Holdastigun þessi fær stuðning í krufningsskýrslu sem...