Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1275/2021"
1 dómar fundust
A kærði dóm Landsréttar þar sem máli hennar á hendur Í var vísað frá héraðsdómi. Ágreiningur málsins laut að því hvort A hefði lögvarða hagsmuni af því að fá efnisdóm um ógildingu úrskurðar kærunefndar útlendingarmála 25. september 2018 þar sem staðfest var synjun Útlendingastofnunar um að veita A vegabréfsáritun til Íslands sumarið 2018. Í dómi Hæstaréttar kom fram að fyrirmæli 60. og 70. gr. stjórnarskrárinnar hefðu verið skýrð þannig að sérhverjum sem eigi lögvarinna hagsmuna að gæta beri réttur til að fá skorið úr ágreiningi um lögmæti ákvarðana og athafna stjórnvalda. Tiltekin réttaráhrif væru enn bundin við ákvörðunina frá 2018 um að synja A um vegabréfsáritun. Þannig væri mælt fyrir um skráningu ákvörðunarinnar og ástæður að baki henni í miðlægt upplýsingakerfi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu. Eina úrræði A til þess að fá eytt þeim persónuupplýsingum, sem skráðar væru um hana í kerfið og hún telur óáreiðanlegar eða rangar, væri að leita til dómstóla hér á landi til að fá ógilta stjórnvaldsákvörðun um synjun vegabréfsáritunar. Þegar þetta væri virt hefði A lögvarða hagsmuni af því að fá leyst úr kröfu sinni um ógildingu á úrskurði kærunefndar útlendingamála sem staðfesti ákvörðun Útlendingastofnunar. Var hinn kærði dómur felldur úr gildi og lagt fyrir Landsrétt að taka málið til efnismeðferðar.
...einnig reglugerð nr. 1275/2021 um íslenskan hluta upplýsingakerfis (N-VIS) um vegabréfsáritanir, en annars er meginreglan samkvæmt 23. gr. fyrrgreindrar reglugerðar að varðveislutími upplýsinga um umsóknir sé að hámarki...