Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1222/2012"

2 dómar fundust

Landsréttur birt 3. nóvember 2023

212/2022

Zvonimir Cogelja (Gunnar Sturluson lögmaður) gegn embætti landlæknis (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

Z höfðaði mál og krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður H sem staðfesti ákvörðun L um að hafna því að gefa út til handa Z svokallað CCPS-vottorð, þ.e. vottorð um formlega menntun og hæfi sem staðfesti að nám Z hafi uppfyllt skilyrði tilskipunar 2005/36/EB. Héraðsdómur leitaði ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins um hvernig túlka beri ákvæði umræddrar tilskipunar að þessu leyti. Í ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins kom fram að ef EES-ríki býður ekki upp á sérnám í tilteknu fagi, en hyggst gefa út vitnisburð um formlega menntun og hæfi á grundvelli náms, verði það að gera námsáætlun eða skipulag fyrir námskrá og heildstætt nám sem sýnt sé að standist kröfur 25. gr. tilskipunarinnar um sérnám í læknisfræði. Landsréttur vísaði til þess að lögbært yfirvald á Íslandi hafi ekki boðið upp á nám á sviði lýtalækninga sem fullnægi kröfum 2. mgr. 25. gr. tilskipunarinnar um fræðilegt og verklegt nám. Það verklag að fela sérfræðinefnd mat um það hvaða kröfur verði gerðar til fræðilegs og verklegs náms á þessu sviði tryggi ekki með fullnægjandi hætti gagnsætt kerfi sem geti tryggilega staðfest að uppfyllt séu skilyrði 25. gr. tilskipunarinnar. Þótt L hefði áður gefið út slík vottorð, sem samkvæmt framangreindu fóru í bága við efni tilskipunar 2005/36/EB, bar L við nýja ákvörðun að fara eftir þeim reglum sem voru í gildi um skilyrði þess að unnt væri að gefa út CCPS-vottorð. Að framangreindu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna var hinn áfrýjaði dómur staðfestur.

...einnig þágildandi reglugerð nr. 1222/2012 um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta lækningaleyfi og sérfræðileyfi. Í því leyfi felist vitnisburður um formlega menntun og hæfi...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. mars 2022

E-4237/2019

Zvonimir Cogelja (Gunnar Sturluson lögmaður) gegn embætti landlæknis (Einar Karl Hallvarðsson lögmaður)

Sænskur læknir krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður heilbrigðisráðuneytisins um að staðfesta þá ákvörðun embættis landlæknis um að synja lækninum um útgáfu svokallaðs CCPS-vottorðs. Kröfu læknisins var hafnað.

...einnig þágildandi reglugerð nr. 1222/2012 um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta lækningaleyfi og sérfræðileyfi. Í því leyfi felist vitnisburður um formlega menntun og hæfi...