Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1212/2015"

2 dómar fundust

Landsréttur birt 24. júní 2022

745/2021

Ísorka ehf (Stefán A. Svensson lögmaður) gegn Orku náttúrunnar ohf. (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður) og Reykjavíkurborg (Theodór Kjartansson lögmaður, Kristín Sólnes lögmaður, 3. prófmál)

Deilt var um hvort ógilda bæri úrskurð kærunefndar útboðsmála 11. júní 2021 í máli nr. 44/2020. ON ohf. varð hlutskarpastur í útboðinu sem R stóð að og tókust samningar þeirra á milli um uppsetningu og rekstur hleðslustöðva fyrir rafbíla í Reykjavík. Beindi Í ehf. kæru til kærunefndar útboðsmála af því tilefni. Með fyrrgreindum úrskurði var samningurinn lýstur óvirkur og lagt fyrir R að bjóða verkið út að nýju og R gerð stjórnvaldssekt, auk þess sem viðurkennd var skaðabótaskylda R gagnvart Í ehf. Í hinum áfrýjaða dómi var fallist á kröfur ON ohf. um ógildingu fyrrgreinds úrskurðar vegna fjölþættra annmarka á úrskurðinum um form og efni. Í dómi Landsréttar var rakið að Í ehf. hefði breytt kröfugerð sinni fyrir kærunefndinni 8. febrúar 2021 þegar fjórir mánuðir voru liðnir frá því að Í ehf. setti fram upprunalega kröfugerð sína í kæru 8. október 2020. Gerði Í ehf. þá fyrst kröfu um að samningurinn yrði lýstur óvirkur, með eða án annarra viðurlaga, samkvæmt 115. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016. Þá kom fram að samkvæmt 1. málslið 1. mgr. 106. gr. sömu laga skuli bera skriflega kæru undir kærunefnd útboðsmála innan 20 daga frá því að kærandi vissi eða mátti vita um þá ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi sem hann teldi brjóta gegn réttindum sínum. Þó væri heimilt samkvæmt 2. málslið sömu lagagreinar að bera kröfu um óvirkni samnings undir nefndina innan 30 daga frá framangreindu tímamarki. Krafa um óvirkni yrði þó ekki höfð upp þegar sex mánuðir væru liðnir frá gerð samnings, sbr. 3. málslið 1. mgr. 106. gr. laganna. Þá sagði að um túlkun 1. mgr. 106. gr. væri til þess að líta að úrskurður um óvirkni samnings samkvæmt 115. gr. laganna hefði þau réttaráhrif að réttindi og skyldur aðila samkvæmt aðalefni samnings féllu niður. Slíkur úrskurður væri í eðli sínu mjög íþyngjandi fyrir hlutaðeigandi. Yrði gildissviði ákvæðisins því ekki gefið víðtækara gildissvið en skýrlega megi ráða af orðalagi þess. Var lagt til grundvallar að frestur Í ehf. til að setja fram kröfu um óvirkni samningsins hefði verið liðinn 8. febrúar 2021. Kærunefndinni hafi því verið óheimilt að taka þá kröfu til meðferðar. Þar sem niðurstaða nefndarinnar hafi verið að taka kröfuna til greina væri slíkur annmarki á málsmeðferð hennar að óhjákvæmilegt væri að staðfesta niðurstöðu hins áfrýjaða dóms.

...Taldi nefndin að ekki ætti að horfa til afskriftahlutfalls í þeim efnum, þrátt fyrir að stefndi hefði vakið athygli á afskriftareglum fastafjármuna samkvæmt reglugerð nr. 1212/2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. nóvember 2021

E-3872/2021

Orka náttúrunnar ohf (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður) gegn Ísorku ehf. (Jóhann Tómas Sigurðsson lögmaður) og Reykjavíkurborg (Kristín Sólnes lögmaður)

Úrskurður kærunefndar útboðsmála felldur úr gildi. Hann kvað á um óvirkni samnings stefnanda, sem hann hafði hlotið í kjölfar útboðs, auk annarra viðurlaga sem beindust að gagnaðila stefnanda. Talið var að kærunefndin hefði ekki gætt lögmæltra aðferða er málið var lagt í annan farveg en kæra kæranda gaf tilefni til. Þá hefði kærunefndinni borið að vísa málinu frá nefndinni þar sem kærufrestur hefði verið liðinn er kærandi gjörbreytti kröfugerð sinni auk þess sem útboðið sem um ræddi náði ekki þeirri lágmarksfjárhæð sérleyfissamninga sem áskilin var til að auglýsa þyrfti útboð á Evrópska efnahagssvæðinu eða í það minnsta að tilkynna samningsgerð án útboðs í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins. Þá var í raun einnig áhorfsmál hvort umþrættur samningur teldist vera sérleyfissamningur í skilningi reglugerðar.

...Taldi nefndin að ekki ætti að horfa til afskriftahlutfalls í þeim efnum, þrátt fyrir að stefndi hefði vakið athygli á afskriftareglum fastafjármuna samkvæmt reglugerð nr. 1212/2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir...