Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1184/2014"
2 dómar fundust
G höfðaði mál og krafði Í um greiðslu sem nam uppsöfnuðu tapi af rekstri hjúkrunarheimilisins Ísafoldar á árunum 2013 til 2015. Var málatilbúnaður G reistur á því að framlög til heimilisins frá Í með daggjöldum hefði ekki nægt fyrir rekstrarkostnaði. Aðilar höfðu gert samning í maí 2010 um byggingu og þátttöku í leigu hjúkrunarheimilis fyrir aldraða í Garðabæ. Í þeim samningi var meðal annars tekið fram að aðilar myndu gera samning um rekstur hjúkrunarheimilisins en slíkur samningur var aldrei gerður. Með vísan til þess var í dómi Hæstaréttar talið að Í hefði ekki skuldbundið sig til greiðslu alls kostnaðar við rekstur hjúkrunarheimilisins og að greiðsluskylda Í yrði ekki reist á vanefnd samningsskuldbindingar gagnvart G. Þá taldi rétturinn að Í hefði axlað skyldur sínar að lögum gagnvart G með því að tryggja sveitarfélaginu fjárveitingar á fjárlögum á umræddum árum. Var Í því sýknað af kröfum G.
...112/2008 og reglugerð nr. 1184/2014, um greiðslu kostnaðar vegna heilbrigðisþjónustu í hjúkrunarrýmum öldrunarstofnana sem eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands, sem sett var á grundvelli heimildar í 2...
G höfðaði mál og gerði fjárkröfu á hendur Í sem nam uppsöfnuðu tapi af rekstri hjúkrunarheimilisins Ísafoldar á árunum 2013 til 2015 þar sem daggjöld frá Í dugðu ekki fyrir rekstrarkostnaði. Málsaðilar höfðu gert með sér samning 14. maí 2010 um byggingu og þátttöku í leigu hjúkrunarheimilis fyrir aldraða í Garðabæ. Í samningnum kom fram að málsaðilar skyldu gera samning um rekstur hjúkrunarheimilisins. Ekki kom til þess að slíkur samningur væri gerður en þrátt fyrir það tók G að sér fyrrgreindan rekstur. Landsréttur taldi að samningurinn frá 14. maí 2010 yrði ekki túlkaður með þeim hætti að Í hefði með honum skuldbundið sig til að greiða rekstrarkostnað hjúkrunarheimilisins. Jafnframt taldi Landsréttur að þótt hjúkrunarheimilum hafi verið markaðar fjárveitingar í fjárlögum og fjáraukalögum og Tryggingastofnun ríkisins og síðar Sjúkratryggingum Íslands hafi verið falið það hlutverk að tryggja hjúkrunarheimilum rekstrarfé í formi daggjalda á grundvelli laga nr. 100/2007 og 112/2008, svo og reglugerða á grundvelli þeirra og gjaldskrár Sjúkratrygginga Íslands, yrði ekki ráðið af framangreindum réttarheimildum að í þeim fælist skuldbinding Í til þess að tryggja rekstraraðilum hjúkrunarheimila algert skaðleysi af rekstrinum. Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að Í hefði axlað skyldur sínar lögum samkvæmt gagnvart hjúkrunarheimilinu Ísafold með því að tryggja hjúkrunarheimilum fjárveitingar á fjárlögum fyrir árin 2013 til 2015 og leggja hjúkrunarheimilinu til daggjöld samkvæmt reiknilíkani um skiptingu fjárveitinga frá Alþingi til hjúkrunarheimila, í samræmi við reglugerðir og gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands. Var niðurstaða héraðsdóms því staðfest.
...112/2008 og reglugerð nr. 1184/2014, um greiðslu kostnaðar vegna heilbrigðisþjónustu í hjúkrunarrýmum öldrunarstofnana sem eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands, sem sett var á grundvelli heimildar í 2...