Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lykilorð: Hjúkrunarheimili
G og D höfðuðu mál gegn Í til heimtu skaðabóta þar sem Í hefði ekki greitt þeim endurgjald fyrir stofnkostnað, afskriftir eða meiri háttar viðhald fasteigna sem þeir hefðu notað í starfsemi sinni við rekstur hjúkrunar- og dvalarrýma á árunum 2013 til 2016. Byggðu G og D á því að þeir ættu rétt á greiðslum úr hendi Í sem hefðu svarað til eðlilegs leigugjalds á tímabilinu fyrir fasteignir sem G og D hefðu notað við rekstur á hjúkrunar- og dvalarrýmum. Í dómi Landsréttar kom fram að G og D hefðu ekki sýnt fram á að þeir ættu, á grundvelli laga eða samninga, lögvarða kröfu á hendur Í um greiðslu á leigu fyrir notkun á umræddum fasteignum í starfsemi sinni. Af gögnum málsins mátti ráða að aðgangur aðila að fjármunum til uppbyggingar á þessu sviði hefði verið mismunandi í gegnum tíðina og að reglur um fjármögnun hjúkrunar- og dvalarrýma hefðu breyst. Að teknu tilliti til stöðu aðila og reglna um fjármögnun stofnkostnaðar, viðhalds og endurbóta á fasteignum til þessarar starfsemi var ekki talið að ákvarðanir Í um uppbyggingu og fjármögnun hjúkrunar- og dvalarrýma hefðu í gegnum tíðina verið ómálefnalegar gagnvart G og D og að þar hafi ekki verið gætt meðalhófs, sem leitt hefði til mismununar í andstöðu við 65. gr. stjórnarskrárinnar um jafnræði. Var Í því sýknað af kröfum G og D.
HR og HH höfðuðu mál gegn Í til heimtu skaðabóta þar sem Í hefði ekki greitt þeim endurgjald fyrir stofnkostnað, afskriftir eða meiri háttar viðhald fasteigna sem þeir hefðu notað í starfsemi sinni við rekstur hjúkrunar- og dvalarrýma á árunum 2013 til 2016. Byggðu HR og HH á því að þeir ættu rétt á greiðslum úr hendi Í sem hefðu svarað til eðlilegs leigugjalds á tímabilinu fyrir fasteignir sem HR og HH hefðu notað við rekstur á hjúkrunar- og dvalarrýmum. Í dómi Landsréttar kom fram að HR og HH hefðu ekki sýnt fram á að þeir ættu, á grundvelli laga eða samninga, lögvarða kröfu á hendur Í um greiðslu á leigu fyrir notkun á umræddum fasteignum í starfsemi sinni. Af gögnum málsins mátti ráða að aðgangur aðila að fjármunum til uppbyggingar á þessu sviði hefði verið mismunandi í gegnum tíðina og að reglur um fjármögnun hjúkrunar- og dvalarrýma hefðu breyst. Að teknu tilliti til stöðu aðila og reglna um fjármögnun stofnkostnaðar, viðhalds og endurbóta á fasteignum til þessarar starfsemi var ekki talið að ákvarðanir Í um uppbyggingu og fjármögnun hjúkrunar- og dvalarrýma hefðu í gegnum tíðina verið ómálefnalegar gagnvart HR og HH og að þar hafi ekki verið gætt meðalhófs, sem leitt hefði til mismununar í andstöðu við 65. gr. stjórnarskrárinnar um jafnræði. Var Í því sýknað af kröfum HR og HH.
G höfðaði mál og gerði fjárkröfu á hendur Í sem nam uppsöfnuðu tapi af rekstri hjúkrunarheimilisins Ísafoldar á árunum 2013 til 2015 þar sem daggjöld frá Í dugðu ekki fyrir rekstrarkostnaði. Málsaðilar höfðu gert með sér samning 14. maí 2010 um byggingu og þátttöku í leigu hjúkrunarheimilis fyrir aldraða í Garðabæ. Í samningnum kom fram að málsaðilar skyldu gera samning um rekstur hjúkrunarheimilisins. Ekki kom til þess að slíkur samningur væri gerður en þrátt fyrir það tók G að sér fyrrgreindan rekstur. Landsréttur taldi að samningurinn frá 14. maí 2010 yrði ekki túlkaður með þeim hætti að Í hefði með honum skuldbundið sig til að greiða rekstrarkostnað hjúkrunarheimilisins. Jafnframt taldi Landsréttur að þótt hjúkrunarheimilum hafi verið markaðar fjárveitingar í fjárlögum og fjáraukalögum og Tryggingastofnun ríkisins og síðar Sjúkratryggingum Íslands hafi verið falið það hlutverk að tryggja hjúkrunarheimilum rekstrarfé í formi daggjalda á grundvelli laga nr. 100/2007 og 112/2008, svo og reglugerða á grundvelli þeirra og gjaldskrár Sjúkratrygginga Íslands, yrði ekki ráðið af framangreindum réttarheimildum að í þeim fælist skuldbinding Í til þess að tryggja rekstraraðilum hjúkrunarheimila algert skaðleysi af rekstrinum. Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að Í hefði axlað skyldur sínar lögum samkvæmt gagnvart hjúkrunarheimilinu Ísafold með því að tryggja hjúkrunarheimilum fjárveitingar á fjárlögum fyrir árin 2013 til 2015 og leggja hjúkrunarheimilinu til daggjöld samkvæmt reiknilíkani um skiptingu fjárveitinga frá Alþingi til hjúkrunarheimila, í samræmi við reglugerðir og gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands. Var niðurstaða héraðsdóms því staðfest.