Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1150/2022"
2 dómar fundust
Ágreiningur málsins laut að því hvort L ætti rétt til endurgreiðslu úr hendi Í á hluta endurgjalds fyrir tollkvóta sem gilti frá 1. janúar til 20. júní 2023 vegna tafa sem urðu á afhendingu 20 tonna sendingu af alifuglakjöti frá Póllandi. Í dómi Landsréttar kom fram að hvorki í lögum né reglugerð settri með stoð í þeim, væri að finna heimild til að endurgreiða það gjald sem L hafði innt af hendi fyrir umræddan tollkvóta, né breyta því tímabili sem innflutningur á grundvelli kvótans var bundinn við. Þá hefði ástæða tafanna verið þekkt og viðvarandi áhætta í innflutningi alifuglakjöts og var ekki talið hægt að jafna þeim við þær aðstæður sem uppi voru þegar Covid faraldurinn reið yfir og stjórnvöld settu almennar og tímabundnar aðgerðir um tollkvóta með setningu reglugerðar sem átti sér stoð í lögum. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um sýknu Í af kröfum L.
...október 2022 tók gildi reglugerð nr. 1150/2022 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins, en hún féll úr gildi 10. nóvember 2023. Í 1. mgr...
Stefnandi krafði stefnda um endurgreiðslu á fjárhæð sem hann hafði innt af hendi fyrir 20 tonna tollkvóta vegna innflutnings alifuglakjöts þar sem honum var ókleift að flytja inn umrætt magn innan gildistíma tollkvótans vegna atvika sem tengdust pólskum framleiðanda alifuglakjöts. Ekki var fallist á með stefnanda að hann hefði ofgreitt stefnda vegna umrædds tollkvóta þar sem hann öðlaðist þau tímabundnu réttindi sem falin voru í tollkvótanum og bar stefndi ekki ábyrgð á því að stefnanda var ókleift að nýta sér allan úthlutaðan tollkvóta innan gildistíma hans.
...október 2022 tók gildi reglugerð nr. 1150/2022 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins, en hún féll úr gildi 10. nóvember 2023. Í 1. mgr...