Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Tollkvótar

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. júní 2025

E-3046/2024

LL42 ehf (Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jóhanna Katrín Magnúsdóttir lögmaður)

Stefnandi krafði stefnda um endurgreiðslu á fjárhæð sem hann hafði innt af hendi fyrir 20 tonna tollkvóta vegna innflutnings alifuglakjöts þar sem honum var ókleift að flytja inn umrætt magn innan gildistíma tollkvótans vegna atvika sem tengdust pólskum framleiðanda alifuglakjöts. Ekki var fallist á með stefnanda að hann hefði ofgreitt stefnda vegna umrædds tollkvóta þar sem hann öðlaðist þau tímabundnu réttindi sem falin voru í tollkvótanum og bar stefndi ekki ábyrgð á því að stefnanda var ókleift að nýta sér allan úthlutaðan tollkvóta innan gildistíma hans.