Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 108/1999"

2 dómar fundust

Landsréttur birt 9. desember 2022

546/2021

Menntamiðstöðin ehf (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður) gegn Kára Jónassyni (Kristinn Bjarnason lögmaður)

M ehf. höfðaði mál á hendur KJ og krafðist ómerkingar á ummælum sem hann hafði látið falla í sjónvarpsþætti um skóla sem M ehf. rak, auk skaðabóta. Byggði M ehf. á því að skilja mætti ummælin á þann veg að leiðsögumannanám á vegum skólans væri ekki kennt samkvæmt námskrá menntamálaráðuneytisins. Í dómi Landsréttar var rakið að ummælin hefðu verið hluti af opinberri umræðu um menntamál leiðsögumanna sem var í gangi á þeim tíma. Þá hefðu ummælin beinst að atvinnufyrirtæki sem bauð almenningi þjónustu en ekki einstaklingi og yrðu slík fyrirtæki að þola meiri gagnrýni með hliðsjón af dómaframkvæmd Hæstaréttar og mannréttindadómstóls Evrópu. Að lokum yrði að meta ummælin heildstætt sem gildisdóm sem hefði átt sér næga stoð í staðreyndum og hefði gefið til kynna andstöðu KJ við að ekki hefðu verið gerðar meiri eða skýrari kröfur til þeirra sem útskrifuðust úr náminu. Að framangreindu virtu var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sýknu KJ af kröfum M ehf.

...Í því kom fram að Menntamálastofnun hefði nýlega tekið við því verkefni, samkvæmt reglugerð nr. 108/1999, að veita skólum á framhaldsskólastigi, sem væru reknir af einkaaðilum eða samtökum, viðurkenningu...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. desember 2011

E-1605/2011

Hilmar Pétursson (Stefán A. Svensson hrl) gegn Hraðbraut ehf (Hrafnhildur Stefánsdóttir hrl)

Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda um skaðabætur í tilefni af uppsögn úr starfi. Þótti ósannað að uppsögnin hefði verið reist á ólögmætri ástæðu.

...einnig eldri reglugerð nr. 108/1999 um sama efni. Um starfsemi stefnda gildi jafnframt lög nr. 87/2008 um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla...