Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1044/2013"

2 dómar fundust

Hæstiréttur birt 18. júní 2015

822/2014

Árni Svavar Arnarson (Daníel Isebarn Ágústsson hrl) gegn Isavia ohf (Andri Árnason hrl)

Á, sem I ohf. hafði vísað úr starfsþjálfun til flugumferðarstjóra, höfðaði mál á hendur I ohf. til heimtu skaðabóta vegna tjóns af völdum brottrekstursins og miskabóta vegna þess hvernig staðið hefði verið að honum. Talið var að ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993 giltu um töku ákvarðana I ohf. um rétt eða skyldu manna innan hlutaðeigandi verksviðs. Þá var talið að Á hefði ekki staðist þær prófkröfur sem gerðar voru til árangurs í verklegum æfingum á námstímanum samkvæmt þeirri þjálfunaráætlun sem um nám hans gilti og að það úrræði að vísa Á úr námi af þeirri ástæðu hefði átt sér stoð í lögum. Í ljósi þeirra skilmála er giltu um námið og ástæðna sem lágu til grundvallar námslokum Á voru ekki talin skilyrði til að dæma honum bætur fyrir fjártjón. Á hinn bóginn var lagt til grundvallar að vegna þess hvernig staðið hefði verið að brottvísun Á úr náminu hefði hann orðið fyrir miska sem veitti honum rétt til bóta samkvæmt 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og voru þær ákveðnar 600.000 krónur.

...nú reglugerð nr. 1044/2013, sbr. g-lið 2. mgr. 22. gr. og II. viðauka reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 805/2011. Áfrýjunarnefnd Samgöngustofu veitti þann 30. ágúst 2013 álit sitt...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. október 2014

E-25/2014

Árni Svavar Arnarson (Daníel Isebarn Ágústsson hrl) gegn Isavia ohf (Andri Árnason hrl)

Brottvísun úr starfsþjálfun. Bótakröfu hafnað.

...nú reglugerð nr. 1044/2013, sbr. g-lið 2. mgr. 22. gr. og II. viðauka reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 805/2011. Áfrýjunarnefnd Samgöngustofu veitti þann 30. ágúst 2013 álit sitt...