Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1043/2008"
2 dómar fundust
H höfðaði mál gegn I ehf. og krafðist þess meðal annars að viðurkennt yrði að I ehf. væri skaðabótaskylt gagnvart honum vegna ólögmætrar riftunar á ráðningarsamningi aðila. Ástæða uppsagnarinnar var atvik er H var á heimleið með farþegaflugvél I ehf. eftir að hafa lokið verkefni á vegum félagsins. I ehf. taldi hegðun H hafa verið ósamrýmanlega stöðu hans sem flugstjóra hjá I ehf. Ekki var talið sannað að H hefði neytt áfengis í óhófi þannig að það hefði farið í bága við reglur I ehf. Þótt ljóst væri að hegðun H hefði verið með þeim hætti að ekki sæmdi stöðu hans var hegðunin ekki talin hafa verið þess eðlis að réttlætt gæti fyrirvaralausa uppsögn úr starfi. Þá var I ehf. ekki talið hafa áður veitt H áminningu vegna óviðeigandi hegðunar en telja yrði slíkt forsendu þess að I ehf. væri heimilt að rifta ráðningarsamningi við H. Því var fallist á viðurkenningarkröfu H. Loks var I ehf. talið hafa gengið lengra í ávirðingum gagnvart H en efni stóðu til í bréfi. Var I ehf. því dæmt til að greiða H 800.000 krónur í miskabætur auk dráttarvaxta.
...Nánar sé kveðið á um störf flugverja í reglugerð nr. 1043/2008 um flug- og vinnutímamörk og hvíldaríma flugverja, en í kafla OPS 1.1095 í viðauka I við reglugerðina...
Viðurkennd var skaðabótaskylda stefnda gagnvart stefnanda vegna ólögmætrar riftunar á ráðningarsamningi aðila.
...Nánar sé kveðið á um störf flugverja í reglugerð nr. 1043/2008 um flug- og vinnutímamörk og hvíldaríma flugverja, en í kafla OPS 1.1095 í viðauka I við reglugerðina...