Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 3. mgr. 14. gr. laga nr. 99/2004 — Lög um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa
Ó ehf. krafði Þ um greiðslu skaðabóta vegna tjóns sem félagið taldi sig hafa orðið fyrir vegna mistaka Þ við umsýslu í tengslum við kaup Ó ehf. á landsspildu í eigu D ehf. Þegar litið var til hlutverks Þ í tengslum við umrædd fasteignakaup og atvika að öðru leyti, svo og dóms Hæstaréttar frá 20. október 2011 í máli nr. 721/2010, var talið að ekki væru næg efni til að líta svo á að meint tjón Ó ehf. yrði rakið til vanrækslu Þ á skyldum hans sem fasteignasala. Var Þ því sýknaður af kröfu Ó ehf.
Snyrtistofa Ólafar Ingólfs ehf (
Ragnar Baldursson hrl)
gegn
Guðmundi Þórðarsyni (sjálfur)
Krafist var skaðabóta úr hendi fasteignasala vegna meintrar vanrækslu hans við sölu fasteignar. Sýkna.