Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 4. mgr. 1. gr. laga nr. 99/2004 — Lög um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa
Með samþykktu kauptilboði 7. maí 2008 komst á kaupsamningur með Í annars vegar og G og H hins vegar um þriggja herbergja íbúð. Fyrir lá í málinu að Í annaðist gerð tilboðsins. Talið var að skuldbinding G og H samkvæmt tilboðinu væri bundin fyrirvara um lán frá lánastofnun og félli hún því niður ef fyrirvarinn gengi ekki eftir. Í tilboðinu sagði einnig að kaupandi skyldi skila inn staðfestu og stimpluðu greiðslumati frá viðskiptabanka sínum innan tveggja vikna frá undirrituðu og samþykktu kauptilboði ef hann hygðist fjármagna íbúðarkaupin að hluta til með veðlánum annars teldist það úr gildi fallið. Fyrir lá að G og H skiluðu ekki nefndu greiðslumati á þeim tímafresti sem kveðið var á um í ákvæðinu og féll skuldbinding þeirra því niður tveimur vikum eftir gerð tilboðsins. Þá var ekki fallist á það með Í að samskipti aðila eftir þetta fengju þessu breytt, enda var talið að fylgja hefði þurft formkröfum 7. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup ef til hefði staðið að endurvekja þær skuldbindingar sem fallið höfðu niður. Voru G og H sýknuð af kröfum Í.
Íslenskir aðalverktaka hf gegn
Guðna Alberti Jóhannessyni, Huldu, Bryndísi Sverrisdóttur, kveðinn og upp svohljóðandi
Deilt um gildi kauptilboðs, sem stefndu gerðu stefnanda í fasteign. Sýkna.