Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 43. gr. laga nr. 96/2002 — Lög um útlendinga

Hæstiréttur birt 18. mars 2008

4/2008

Ákæruvaldið gegn Tomas Arlauskas (Björgvin Jónsson hrl)
Málaflokkur: Útlendingamál

T var sakfelldur fyrir brot gegn lögum um útlendinga nr. 96/2002, með því að hafa í byrjun september 2007 komið til landsins og dvalið hér á landi fram til 20. nóvember er lögreglan stöðvaði för hans, og með því brotið gegn ákvörðun Útlendingastofnunar 19. september 2006, sem staðfest var með úrskurði dóms- og kirkjumálaráðuneytis 16. apríl 2007, um brottvísun T af Íslandi og endurkomubann til landsins næstu 10 ár. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir að hafa haft í vörslum sínum 25,62 g af amfetamíni. Með broti sínu rauf T skilorð reynslulausnar sem honum hafði verið veitt 12. október 2006 í 2 ár á 419 dögum óafplánaðrar refsingar. Með vísan til 1. mgr. 65. gr. laga nr. 49/2005 um fullnustu refsingar var refsing T gerð í einu lagi samkvæmt 60. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 77. gr. sömu laga. Var hún ákveðin fangelsi í 16 mánuði.

Héraðsdómur Reykjaness birt 26. nóvember 2007

S-1041/2007

Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson aðstoðarsaksóknari) gegn Tomas Arlauskas (Björgvin Jónsson hrl)
Lykilorð: Ávana- og fíkniefni.
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Sakfelldur fyrir brot gegn útlendingalögum og lögum um ávana- og fíkniefni.