Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 35. gr. laga nr. 96/2002 — Lög um útlendinga

Hæstiréttur birt 11. desember 2008

209/2008

Guðmundur Jónsson (Guðjón Ólafur Jónsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Sigurður Gísli Gíslason hrl)

G höfðaði mál á hendur Í og krafðist miskabóta vegna ólögmætrar frelsissviptingar. G byggði kröfu sína á því að hann hefði verið sviptur frelsi án þess að hafa verið handtekinn. G var stöðvaður af lögreglunni fyrir of hraðan akstur og með útrunnið ökuskírteini og í kjölfar þess fór hann án þvingunar í lögreglubifreið á lögreglustöð. Hann var hvorki handtekinn né vistaður í fangageymslu. Heldur beið inni á skrifstofu á lögreglustöðinni þar til tekin var af honum skýrsla út af öðru máli. Í skýrslu lögreglunnar var þess ekki getið að G hefði verið handtekinn og í framburði G kom hvergi fram að lögreglan hefði gert honum grein fyrir því að hann hefði verið handtekinn. G lét ekki á það reyna að yfirgefa lögreglustöðina, en samkvæmt framburði vitna bendir ekkert til að honum hefði verið haldið þar að óvilja sínum. Samkvæmt þessu var ekki talið sannað að fullyrðing G um að hann hefði verið sviptur frelsi ætti við rök að styðjast og var Í því sýknað af bótakröfu G.

Héraðsdómur Vesturlands birt 15. júní 2006

S-62/2006

Ákæruvaldið (Ólafur Þór Hauksson sýslumaður) gegn Hjörleifi Jónssyni (Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði, sem neitaði alfarið sök í málinu, sakfelldur og dæmdur til greiðslu sektar fyrir brot gegn lögum um atvinnuréttindi útlendinga og umferðarlögum.