Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lagagrein: 5. mgr. 33. gr. laga nr. 96/2002 — Lög um útlendinga

Hæstiréttur birt 6. júní 2014

392/2014

Ríkislögreglustjóri (enginn) gegn X (Arnar Ingi Ingvarsson hdl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem X, sem sótt hafði um hæli á Íslandi, var gert að sæta gæsluvarðhaldi uns framkvæmd yrði ákvörðun Útlendingastofnunar um endursendingu X. Hæstiréttur vísaði málinu frá héraðsdómi með skírskotun til þess að sá starfsmaður R sem sótti þing í héraði uppfyllti ekki áskilnað 3. mgr. 25. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. 1. mgr. 105. gr. sömu laga og væri því ekki bær til að fara með málið fyrir dómi.

Hæstiréttur birt 17. desember 2013

781/2013

Ríkislögreglustjóri (Thelma Clausen Þórðardóttir fulltrúi) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson hdl)
Lykilorð: Kærumál. Útlendingur.
Málaflokkur: Útlendingamál

Fallist var á kröfu ríkislögreglustjóra um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 5. mgr. 33. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga.