Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lagagrein: 3. mgr. 13. gr. laga nr. 96/2002 — Lög um útlendinga

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. febrúar 2017

E-1555/2016

A B (Davor Purusic hdl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir hrl)

Stefndi sýknaður af kröfu stefnenda um ógildingu úrskurðar kærunefndar útlendingamála frá 11. febrúar 2016 í máli nr. 46/2016, um að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar frá 7. ágúst 2015, um brottvísun A, ríkisborgara Nígeríu, frá Íslandi og bann við endurkomu hans til landsins í tvö ár. Stefndi jafnframt sýknaður af kröfu um að ógiltur yrði úrskurður kærunefndar útlendingamála frá 10. maí 2016 í máli nr. 167/2016 og að frestað verði réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála frá 11. febrúar 2016 í máli nr. 46/2016.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. mars 2011

E-4784/2010

Anielyn Pantilgon Adlawan (Katrín Theodórsdóttir hdl) gegn íslenska ríkinu og Útlendingastofnun (Óskar Thorarensen hrl)

Stefnanda var synjað um dvalarleyfi þar sem rökstuddur grunur var um að til hjónabands hennar hefði verið stofnað í þeim tilgangi einum að afla henni dvalarleyfis hér á landi. Úrskurður dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins, þar sem synjun stefnda Útlendingastofnunar var staðfest, var felldur úr gildi með dóminum

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. mars 2011

E-4084/2010

Thi Phuc Bui (Katrín Theodórsdóttir hdl) gegn íslenska ríkinu og Útlendingastofnun (Soffía Jónsdóttir hdl)

Með dóminum var felldur úr gildi úrskurður dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins 17. febrúar 2010 þar sem staðfest var ákvörðun stefndu, Útlendingastofnunar, um að synja stefnanda um dvalarleyfi.