Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lagagrein: 12. gr. laga nr. 96/2002 — Lög um útlendinga
Íslenska ríkið sýknað af kröfu um ógildingu úrskurðar kærunefndar útlendingamála.
Hælisumsókn. Synjað var kröfu stefnanda um að ógiltur yrði úrskurður innanríkisráðuneytisins og að felld yrði úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar.
Með ákvörðun útlendingaeftirlitsins í apríl 2007, sem staðfest var með úrskurði dóms- og kirkjumálaráðuneytisins í október 2008, var M, írönskum ríkisborgara, synjað um hæli hér á landi sem flóttamanni og jafnframt að honum yrði veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum. M höfðaði mál gegn íslenska ríkinu og krafðist ógildingar á fyrrgreindum ákvörðunum m.a. á þeim grundvelli að útlendingastofnun hafi, með því að túlka 12. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga of þröngt, staðið í vegi fyrir því að veitt yrði dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Þá bar M við form- og efnisgöllum við málsmeðferðina. Talið var að ákvörðun útlendingastofnunar og úrskurður ráðuneytisins hafi verið reist á málefnalegum sjónarmiðum og stjórnvöld við þær ákvarðanir beitt þeim sjónarmiðum sem skylt var að beita samkvæmt 1. mgr. 44.gr., 45. gr. og 12. gr. laga nr. 96/2002. Ákvarðanirnar væru þannig hvorki haldnar form- né efnisannmörkum og íslenska ríkið sýknað af kröfu M í málinu.