Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 7. gr. laga nr. 91/2002 — Lög um varnir gegn landbroti
Einar Sigurþórsson, Eyvindarmúli ehf, Guðjón Stefán Guðbergsson, Jón R. Kristinsson, Laugardælur ehf, Lögmannsstofa SS ehf, Múlakot 1 Fljótshlíð ehf, dánarbú Runólfs Runólfssonar, Sigríður Hjartar, Unnur Tómasdóttir og Þórunn Jónsdóttir (
Óskar Sigurðsson hrl)
gegn
Ragnárþingi eystra Vegagerðinni (
Andri Árnason hrl) og
Landgræðslu ríkisins (
Edda Björk Andradóttir hrl, 4. prófmál)
Í málinu kröfðust E o.fl. þess að ógilt yrði framkvæmdaleyfi V og L sem samþykkt var af sveitarstjórn R í september 2010 vegna enduruppbyggingar á flóðavarnargarði við Þórólfsfell í R sem varð fyrir skemmdum af völdum flóða í Markarfljóti í apríl sama ár. Fyrir lá að endurbygging varnargarðsins lauk í nóvember 2010 og var hann endurreistur í breyttri mynd frá því sem áður var. E o.fl. töldu að sú breyting hefði þau áhrif að Markarfljótið félli frekar að jörðum þeirra og ylli þar spjöllum á landi sem gróið hefði upp í tíð eldri varnargarðs. Reistu þeir kröfu sína einkum á því að ekki hefði verið gætt ákvæða stjórnsýslulaga nr. 37/1993 við undirbúning að veitingu leyfis til framkvæmdanna, auk þess sem brotið hefði verið gegn nánar tilgreindum lögum. Ekki var fallist á með R o.fl. að tilgangur varnargarðsins hefði einungis verið sá að vernda vegarstæði við fljótið en ekki jafnframt að einhverju marki að verja lönd E o.fl. fyrir ágangi þess. Var talið sannað að Markarfljótið bryti með öðrum hætti á garðinum eftir breytinguna en áður. Hefðu R o.fl. ekki leitt líkur að því að yfirvofandi hætta á frekari flóðum hefði réttlætt breytinguna og var lagt til grundvallar að tilgangur breytinga á legu garðsins hefði verið sá að breyta rennsli fljótsins frá því sem það var fyrir flóðin í apríl 2010 og einnig að spara fé við frekara viðhald á honum. Þá var ekki séð að R hefði sinnt ábendingum E o.fl. á mögulegum afleiðingum þess að endurreisa varnargarðinn í breyttri mynd, meðal annars með nauðsynlegum athugunum. Hefði R því ekki upplýst málið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga áður en hann tók ákvörðun um veitingu framkvæmdaleyfis. Var fallist á kröfu E o.fl. um ógildingu leyfisins.
Einar Sigurþórsson, Eyvindarmúli ehf, Guðjón Stefán Guðbergsson, Jón R. Kristinsson, Laugardælur ehf, Lögmannsstofa SS ehf, Múlakot 1 Fljótshlíð ehf, Runólfur Runólfsson, Sigríður Hjartar, Unnur Tómasdóttir og Þórunn Jónsdóttir (
Óskar Sigurðsson hrl)
gegn
Rangárþingi eystra (
Andri Árnason hrl),
Vegagerð ríkisins (
Stefán Erlendsson hdl) og
Landgræðslu ríkisins (
Birkir Snær Fannarsson hdl)
Framkvæmdaleyfi - stjórnsýsla.