Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 14. gr. laga nr. 87/2008 — Lög um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla

Landsréttur birt 1. mars 2019

310/2018

Hafliði Páll Guðjónsson (Lúðvík Bergvinsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður)

H var vikið úr tímabundnu starfi aðstoðarskólameistara við FV og í kjölfarið einnig úr fyrra starfi sem kennari við skólann. Í málinu krafðist H bóta, sem námu launum og launatengdum greiðslum hans sem aðstoðarskólameistara út fimm ára ráðningartíma, skaðabóta vegna uppsagnar úr kennarastarfi og miskabóta. Fallist var á með héraðsdómi að ákvæði ráðningarsamnings um eins mánaðar uppsagnarfrest á reynslutíma ætti ekki við um tímabundna ráðningu H. Þá var fallist á með héraðsdómi að uppsögn H sem aðstoðarskólameistara hefði verið ólögmæt þar sem ekki hafi verið gætt ákvæða laga nr. 70/1996 um skriflega áminningu. Landsréttur taldi það sama eiga við um fyrirvaralausa brottvikningu H úr starfi sem kennari við skólann. Í samræmi við dómaframkvæmd var H talinn eiga rétt á bótum fyrir fjártjón og miska að álitum. Voru H dæmdar 4.000.000 króna í skaðabætur og 500.000 krónur í miskabætur.