Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 3. mgr. 15. gr. e laga nr. 87/1992 — Lög um gjaldeyrismál
1 ehf. krafði S um skaðabætur á þeim grundvelli að ólögmæt og saknæm háttsemi starfsmanna S hefði orðið til þess að 1 ehf. fékk ekki greiðslur sem hann átti rétt á frá K ehf. vegna nauðasamnings félagsins. Byggði 1 ehf. á því að hann hefði getað notið betri ávöxtunar af fjármunum sínum þann tíma sem þeir lágu á fjárvörslureikningi og S hafði til athugunar hvort útgreiðslur K ehf. til hans stæðust ákvæði laga nr. 87/1992 um gjaldeyrismál. Með vísan til dóms Hæstaréttar 27. september 2018 í máli nr. 639/2017 byggði Landsréttur á því að 1 ehf. hefði gerst sekur um brot gegn lögum nr. 87/1992 en rétturinn taldi aftur á móti ekki að greiðslur frá K ehf. til 1 ehf. hefðu farið í bága við ákvæði laganna. Þá var tekið fram að inntak tilgreindra bréfa sem S sendi K ehf. og eftirfarandi rannsókn á ætluðum brotum félagsins hefði verið þess eðlis að K ehf. hefði hlotið að halda að sér höndum með greiðslur til 1 ehf. þar til réttaróvissu yrði eytt en því var hafnað að ólögmæt og saknæm háttsemi hefði falist í þessum samskiptum og rannsókn S. Ekki var heldur fallist á það með 1 ehf. að S yrði gerður ábyrgur fyrir þeim töfum sem hlutust eftir niðurfellingu stjórnsýslumáls S gegn K ehf. af þeirri ákvörðun þess síðastnefnda að halda enn eftir greiðslum til 1 ehf. og leita sérstakrar leiðbeiningar S. Var S sýknaður af kröfum 1 ehf.
R ehf. krafði S um skaðabætur á þeim grundvelli að ólögmæt og saknæm háttsemi starfsmanna S hefði orðið til þess að R ehf. fékk ekki greiðslur sem hann átti rétt á frá K ehf. vegna nauðasamnings félagsins. Byggði R ehf. á því að hann hefði getað notið betri ávöxtunar af fjármunum sínum þann tíma sem þeir lágu á fjárvörslureikningi og S hafði til athugunar hvort útgreiðslur K ehf. til hans stæðust ákvæði laga nr. 87/1992 um gjaldeyrismál. Með vísan til dóms Hæstaréttar 27. september 2018 í máli nr. 638/2017 byggði Landsréttur á því að R ehf. hefði gerst sekur um brot gegn lögum nr. 87/1992 en rétturinn taldi aftur á móti ekki að greiðslur frá K ehf. til R ehf. hefðu farið í bága við ákvæði laganna. Þá var tekið fram að inntak tilgreindra bréfa sem S sendi K ehf. og eftirfarandi rannsókn á ætluðum brotum félagsins hefði verið þess eðlis að K ehf. hefði hlotið að halda að sér höndum með greiðslur til R ehf. þar til réttaróvissu yrði eytt en því var hafnað að ólögmæt og saknæm háttsemi hefði falist í þessum samskiptum og rannsókn S. Ekki var heldur fallist á það með R ehf. að S yrði gerður ábyrgur fyrir þeim töfum sem hlutust eftir niðurfellingu stjórnsýslumáls S gegn K ehf. af þeirri ákvörðun þess síðastnefnda að halda enn eftir greiðslum til R ehf. og leita sérstakrar leiðbeiningar S. Var S sýknaður af kröfum R ehf.