Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 2. mgr. 16. gr. laga nr. 86/1998 — Lög um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra
Stefndi var dæmdur til að greiða stefnanda bætur að álitum vegna þess að ekki var gerður við hann ótímabundinn ráðningarsamningur um áframhaldandi kennslu eftir að hann hafði starfað samfellt sem framhaldsskólakennari í tvö ár.
B starfaði samkvæmt tímabundnum ráðningarsamningi sem framhaldsskólakennari við framhaldsskólann MK skólaárið 2000-2001. Hafði hann leitað án árangurs eftir fastráðningu í kennarastöðu á árinu 2000 vegna skólaársins 2000-2001. Í apríl 2001 knúði hann á um fastráðningu fyrir næsta skólaár og ítrekaði erindi sitt í júní sama árs. Skólameistari MK neitaði og gaf B frest til loka mánaðarins til að undirrita tímabundinn ráðningarsamning til eins árs. Kom B á skrifstofu skólans 20. júní að skólameistara fjarstöddum og undirritaði tímabundinn ráðningarsamning, en bætti við fyrir neðan megintexta hans: „Með fyrirvara um niðurstöðu fastráðningarmáls“. Í framhaldi af þessu tilkynnti skólameistari fjármálaráðuneytinu að B yrði ekki við störf í skólanum næsta skólaár. Talið var að skólameistara hafi verið rétt að líta svo á að með áritun sinni á samninginn hafi B hafnað boði um tímabundinn ráðningarsamning og jafnframt gert nýtt tilboð um samning með öðru efni. Vegna þessa hafi bindandi ráðningarsamningur ekki komist á með undirritun B. Þá var ekki talið sannað að hann hafi fyrir lok tilskilins frests samþykkt munnlega að ganga að tímabundum ráðningarsamingi. Var íslenska ríkið því sýknað af kröfu hans.