Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lög: Lög um breyting á þinglýsingalögum, nr. 39 10. maí 1978. nr. 85/1989

Hæstiréttur birt 28. júní 1999

33/1999

Íslenska ríkið (Skarphéðinn Þórisson hrl) gegn Hauki Haraldssyni, Oddbjörgu Óskarsdóttur, Haukur Haraldsson (Ragnar Halldór Hall hrl) og Oddbjörg Óskarsdóttir (Aðalsteinn E. Jónasson hrl)

Veðlán bankans B hvíldi á landspildu í eigu byggingaverktakans H. I og Ó keyptu fasteignina A af H og skyldi H reisa hús á fasteigninni. Fasteignin A var hluti af spildunni en hafði enn ekki verið sérgreind í veðmálabókum. Lét H skuldarinnar ekki getið. Við sérgreiningu fasteignarinnar A úr spildunni urðu þau mistök að veðskuldarinnar var ekki getið. Sveitarfélagið M, sem gerði lóðarleigusamning við I og Ó upplýsti þau heldur ekki um skuldina enda þótt sveitarfélagið hefði samþykkt hana sem þinglýstur eigandi landsins á sínum tíma. H varð gjaldþrota áður en byggingunni var lokið. Héldu þau I og Ó þá áfram framkvæmdum við húsbygginguna á eigin vegum og þinglýstu m.a. tveimur skuldabréfum athugasemdalaust á eignina. Við þinglýsingu þriðja skuldabréfsins var rituð athugasemd um veðrétt B. Í framhaldi af þessu fékk B veðrétt sinn staðfestan með dómi og lét selja eignina nauðungarsölu. I og Ó stefndu aðallega íslenska ríkinu, en til vara M vegna þess tjóns sem þau höfðu orðið fyrir. Ríkið var sýknað enda þótti hvorki vera uppfyllt það skilyrði þinglýsingarlaga til greiðslu bóta að þau væru grandlaus, né að tjón þeirra væri sennileg afleiðing mistakanna. Þá var M sýknað enda þótti ekki unnt að álykta að M hefði verið skylt að tilgreina þær veðsetningar sem til til hafði verið stofnað eftir að landið komst í eigu H.