Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lagagrein: 1. mgr. 2. gr. laga nr. 84/2007 — Lög um opinber innkaup
Árið 2011 efndi Í til rammasamningsútboðs er nefndist Ísland allt árið og hafði verkefnið þann tilgang að jafna árstíðarsveiflu í komu ferðamanna til landsins. Í kjölfar sérstakrar kynningar þriggja auglýsingastofa, sem tilboð bárust frá, á hugmyndum sínum gerði Í rammasamninga við F ehf. og ÍA ehf. Öll kaup Í á þjónustu á grundvelli samninganna voru gerð við ÍA ehf. en engum viðskiptum var beint til F ehf. Í málinu krafðist F ehf. viðurkenningar á skaðabótaskyldu Í og ÍR vegna tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna þessa. Í dómi Hæstaréttar kom fram að samkvæmt rammasamningi Í við ÍA ehf. hefði tímagjald stofunnar verið umtalsvert lægra en tímagjald F ehf. Þá hafði sú stofa fengið hærri einkunn valnefndar en F ehf. fyrir kynningu sína og í samræmi við það hefði henni verið falið að móta grunnhugmyndafræði og hönnun verkefnisins, en í útboðsskilmálum hafði verið gert ráð fyrir að gengið yrði til samninga við einn af bjóðendum um það verk. Með skírskotun til þessa hvors tveggja var talið að Í hefði sýnt nægjanlega fram á, með hliðsjón af meginreglum stjórnsýsluréttar og ákvæðum þágildandi laga nr. 84/2007 um opinber innkaup, að þær ákvarðanir hans að fela þessari sömu auglýsingastofu önnur verk, sem rammasamningarnir hefðu tekið til, hefðu verið málefnalegar og ekki falið í sér ólögmæta mismunun í garð F ehf. Voru Í og ÍR því sýknuð af kröfu F ehf.
Skaðabótamál.
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli Í ehf. var vísað frá dómi. Málið átti rætur að rekja til útboðs á vegum S þar sem samið var við GV ehf. um sorphirðu í sveitarfélaginu. Í ehf. taldi sig hafa átt tilkall til þess að hljóta verkið og höfðaði mál gegn S og krafðist viðurkenningar á rétti til skaðabóta fyrir missi hagnaðar af verkinu. Í úrskurði héraðsdóms, sem Hæstiréttur staðfesti með vísan til forsendna hans, var Í ehf. ekki talið hafa fært viðhlítandi rök fyrir því að það hefði orðið fyrir fjárhagslegu tjóni sem rekja mætti til ákvörðunar S. Var því ekki talið að það lægi fyrir að Í ehf. hefði lögvarða hagsmuni af því að fá leyst úr viðurkenningarkröfu sinni, sbr. 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991, og var málinu því vísað frá dómi.