Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 1. gr. laga nr. 82/2000 — Lög um framkvæmd tiltekinna þátta í varnarsamstarfi Íslands og Bandaríkjanna

Hæstiréttur birt 21. október 2004

174/2004

Atlantsskip ehf (Ásgeir Þór Árnason hrl, Lúðvík Örn Steinarsson hdl) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen hrl)

Deilt var um lögmæti þeirra skilyrða, sem forvalsnefnd utanríkisráðuneytisins setti fyrir þátttöku í útboði um sjóflutninga fyrir varnarliðið á Keflavíkurflugvelli. Í b. lið 2. gr. reglugerðar sem sögð var sett á grundvelli laga nr. 82/2000 sagði að í orðunum „skip sem íslensk skipafélög gera út“ í samningi ríkjanna um sjóflutninga fælist, að skipin skyldu vera undir yfirstjórn og yfirráðum íslenskra skipafélaga. Í því fælist að íslensk skipafélög skyldu hafa húsbóndavald yfir áhöfn skipanna og ráðningarsamband við áhöfn þess. Hélt A því fram að fyrir síðara hluta ákvæðisins væri engin stoð í lögunum. Var A talinn hafa lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins, þrátt fyrir að útboðinu hafi lokið fyrir aðaðmeðferð málsins í héraði. Hvorki umræddur samningur ríkjanna né lög nr. 82/2000 skilgreindu hvað væru skip sem íslensk skipafélög gera út. Í lögunum fólst eingöngu hvað teldist íslenskt skipafélag og uppfyllti A öll ákvæði laganna þar um. Talið var að í síðari málslið umdeilds ákvæðis væri fólgin takmörkun á því hvaða rekstrarfyrirkomulag mætti vera á útgerð skipanna. Ekki yrði mælt fyrir um slíka takmörkun í reglugerð án skýrrar heimildar um efni og umfang hennar í settum lögum frá Alþingi. Af þessu leiddi að lagaheimild brast til setningar hins umdeilda skilyrðis.