Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 27. gr. laga nr. 81/1988 — Lög um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit

Hæstiréttur birt 11. maí 2000

492/1999

Jón Guðmundsson (Steingrímur Þormóðsson hrl) gegn Reykjavíkurborg (Hjörleifur Kvaran hrl)

J fékk í september 1988 undanþágu frá banni við hundahaldi fyrir þrjá hunda í Reykjavík. J ræktaði hunda á heimili sínu í borginni og var yfirleitt með fleiri hunda en undanþágan náði til. Sótti hann ekki um sérstakt starfsleyfi fyrir starfsemina. Höfðu lögregla og heilbrigðiseftirlit oft afskipti af hundahaldi J. Í júlí 1996 var leyfi J til hundahalds fellt niður vegna vanskila á leyfisgjaldi og var skorað á hann að afhenda hunda sína hundaeftirlitsmanni. J sinnti því ekki og í september 1996 heimilaði héraðsdómur lögreglu húsleit hjá J til að kanna, hvort hann héldi þar hunda ólöglega. Við húsleitina voru 32 hundar fjarlægðir. Afsalaði J sér 31 hundi, en einn var aflífaður. Höfðaði J mál á hendur Reykjavíkurborg vegna meintrar ólögmætrar töku hundanna og krafðist bóta. Ekki var talið, að J hefði sýnt fram á, að hundaræktun hefði verið atvinnustarfsemi hans á þann veg, að hún hefði notið verndar 75. gr. stjórnarskrárinnar, enda hefði hann ekki haft leyfi að lögum til þeirrar starfsemi. Þá var talið ósannað, að gert hefði verið samkomulag við J þess efnis að hann greiddi einungis leyfisgjald af tveimur til fjórum hundum á ári en hefði heimild til að halda mun fleiri hunda vegna hundaræktunar sinnar. Einnig var talið óumdeilt, að leyfi J til að halda þrjá eða fjóra hunda hefði verið fallið úr gildi, þegar lögregla fjarlægði 32 hunda af heimili hans. Voru aðgerðir gagnvart J taldar réttmætar og samkvæmar lögum og var niðurstaða héraðsdóms um sýknu Reykjavíkurborgar af kröfum J staðfest.