Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lög: Lög um þriðju kynslóð farsíma nr. 8/2005

Landsréttur birt 17. maí 2024

483/2022

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Oddgeir Einarsson lögmaður) og Y (Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

X var gefið að sök fíkniefnalagabrot og lyfjalagabrot. Landsréttur vísaði frá héraðsdómi, vegna óskýrleika ákæru, hluta ákæru þar sem X var gefið að sök að hafa allt frá árinu 2013 og til 6. mars 2019 selt og afhent ótilgreindum fjölda fólks lyfseðilsskyld lyf og ávana- og fíknilyf, án þess að hafa til þess markaðs- og lyfsöluleyfi Lyfjastofnunar, en taldi seinni hlutann þar sem tilgreind voru þau lyf og ávana- og fíknilyf sem X hafði í vörslum sínum í þrjú nánar tilgreind skipti á árunum 2018 og 2019, í sölu- og afhendingarskyni, án þess að hafa markaðs- og lyfsöluleyfi Lyfjastofnunar, uppfylla kröfur um skýrleika ákæru, sbr. c-lið 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu X af þeim hluta sakargifta sem eftir stóðu. Þá var X sakfelldur fyrir vopnalagabrot með því að hafa haft nánar tilgreind vopn í vörslum sínum. Loks var X sakfelldur fyrir peningaþvætti með því að hafa, á tímabilinu frá 28. september 2012 til 30. október 2018, tekið við, nýtt, umbreytt, afhent og/eða aflað sér ávinnings allt að 84.449.884 krónum með sölu og dreifingu sinni á ótilteknu magni lyfja, sbr. I. kafla ákæru, og eftir atvikum með öðrum ólögmætum og refsiverðum hætti. Y var jafnframt gefið að sök peningaþvætti með því að hafa, á tímabilinu frá 28. september 2012 til 30. október 2018 tekið við, nýtt, umbreytt, afhent og/eða aflað sér ávinnings allt að fjárhæð 23.826.637 krónum, sem talinn var kominn til af refsiverðum brotum X og eftir atvikum öðrum ólögmætum og refsiverðum hætti. Í dómi Landsréttar kom fram að ekki væri um að ræða aðra lýsingu á frumbrotinu en tilvísun til refsiverðra brota X, án frekari afmörkunar, og eftir atvikum til annarrar ólögmætrar og refsiverðrar háttsemi. Enga aðra tilvísun væri þar að finna til þeirra frumbrota sem Y væri talin hafa haft ávinning af, né heldur hvers efnis þau frumbrot væru eða eftir atvikum hvaða brotaflokki þau tilheyrðu. Þá væri í ákærunni ekki að finna fullnægjandi lýsingu á því í hverju sú öflun ávinnings fólst, af hálfu Y umfram það sem hefði falist í frumbrotum X. Yrði því ekki talið að nægileg lýsing kæmi fram í ákærunni á þeirri refsiverðu háttsemi sem ákæran á hendur Y byggði á um þetta atriði. Var þegar af þessum sökum talið að lýsing ákæruefnisins uppfyllti ekki skilyrði c-liðar 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um skýrleika og að ágallarnir væru verulegir. Var því óhjákvæmilegt að vísa sakargiftum á hendur Y frá héraðsdómi án kröfu. Við ákvörðun refsingar X var litið til 1., 5. og 6. töluliðar 1. mgr. 70. gr., 77. gr. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var refsing X ákveðin fangelsi í tvö ár. Þá var staðfest ákvæði héraðsdóms um upptöku nánar tilgreindra ávana- og fíknilyfja, eignarhluta í tilgreindri fasteign, vopna, peninga og muna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. júlí 2022

S-1762/2021

Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði X sakfelldur fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni og lyfjalögum, vopnalagabrot og peningaþvætti. Ýmsir munir og ávinningur af peningaþvætti gert upptækt. Ákærða Y var sakfelld fyrir peningaþvætti. Ákærðu Z og U voru sýknuð af ákæru en U gert að sæta upptöku á vopnum.