Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 14. gr. laga nr. 8/1993 — Samkeppnislög

Hæstiréttur birt 8. febrúar 2007

304/2006

Rannsóknarstofan í Mjódd sf (Heimir Örn Herbertsson hrl) gegn Samkeppniseftirlitinu (Kristinn Bjarnason hrl, Guðmundur Óli Björgvinsson hdl)
Lykilorð: Samkeppni. Heilbrigðismál.

Gerður var samningur milli LHS og heilsugæslunnar í Reykjavík þess efnis að rannsóknarstofnun sjúkrahússins tæki við rannsóknum fyrir heilsugæsluna á tilteknum sviðum. Áður hafði R sinnt slíkum rannsóknum fyrir heilsugæsluna í Mjódd og Grafarvogi. R krafðist þess að Samkeppnisstofnun tæki málið til athugunar. Samkeppnisráð taldi ekki ástæðu til að hafast frekar að vegna málsins og var sú ákvörðun staðfest hjá áfrýjunarnefnd samkeppnismála 27. apríl 2005. R krafðist þess fyrir dómi að fyrrnefndur úrskurður áfrýjunarnefndarinnar yrði felldur úr gildi. Taldi R að samningur LHS og heilsugæslunnar í Reykjavík hefði heimilað samkeppnisyfirvöldum að grípa til aðgerða á grundvelli b. liðar 1. mgr. 17. gr. og 14. gr. þágildandi samkeppnislaga nr. 8/1993. Með dómi Hæstaréttar var staðfest sú niðurstaða áfrýjuarnefndarinnar að 3. mgr. 42. gr. laga nr. 97/1990 um heilbrigðisþjónustu, hefði að geyma sérákvæði sem heimilaði ráðherra að ákveða hvort eða í hvað miklum mæli heilbrigðisyfirvöld keyptu tiltekna rannsóknarþjónustu af einkaaðilum og væri því ekki skilyrði til að beita b. lið 17. gr. Þá var og staðfest að ekki hefði verið skilyrði til að beita heimild 14. gr. þágildandi samkeppnislaga þar sem sú þjónusta sem rannsóknarstofnun LHS veitti heilsugæslunni í Reykjavík væri aðeins í þágu hins opinbera heilbrigðiskerfis en ekki á frjálsum markaði. Var kröfu R því hafnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. maí 2006

E-6735/2005

Rannsóknarstofan í Mjódd sf (Heimir Örn Herbertsson hdl) gegn Samkeppniseftirlitinu (Gizur Bergsteinsson hdl)

Kröfu stefnanda um að felldur yrði úr gildi úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála 27. apríl 2005 var hafnað. Með úrskurðinum var staðfest ákvörðun samkeppnisráðs frá 18. febrúar 2005 um að ekki væri ástæða til að aðhafast samkvæmt samkeppnislögum vegna samnings Landspítalans og Heilsugæslunnar í Reykjavík 20. apríl 2004 um að rannsóknir á sviði blóðflæði og meinefnafræði á vegum heilsugæslunnar færu fram á Rannsóknarstofnun Landspítalans.