Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 5. mgr. 57. gr. laga nr. 8/1986 — Sveitarstjórnarlög

Hæstiréttur birt 31. janúar 2002

314/2001

Jóhann S. Stefánsson (Guðni Ásþór Haraldsson hrl) gegn Siglufjarðarkaupstað (Kristján Þorbergsson hrl)

J var einn þriggja umsækjenda um stöðu aðstoðarskólastjóra grunnskóla S. J var ekki ráðinn í stöðuna og taldi að ekki hefði verið farið að stjórnsýslulögum við ráðninguna og umsókn hans hefði ekki fengið þá faglegu umfjöllun sem hann hafi átt rétt á samkvæmt ákvæðum laga nr. 48/1986 um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara o.fl. Krafðist hann skaðabóta vegna þessa. Samkvæmt grunnskólalögum skyldi sveitarstjórn ráða aðstoðarskólastjóra að fenginni tillögu skólastjóra. Skyldi við ráðninguna gæta ákvæða fyrrnefndra laga nr. 48/1986. Hafði skólastjóri lagt tillögu um ráðninguna, fyrir skóla- og menningarnefnd, og rakið ítarlegar ástæður fyrir því vali. Samþykkti nefndin tillögu skólastjórans og bæjarráð og bæjarstjórn einnig, og var því gengið frá ráðningu þess umsækjanda sem skólastjóri mælti með. Talið var að samkvæmt grunnskólalögum mætti aðeins ráða þann sem fullnægði skilyrðum laga nr. 48/1986. Þá var talið ljóst að mikilvægt væri að skólastjóri og aðstoðarskólastjóri gætu unnið saman og þótti því eðlilegt að skólastjóri hefði lagt til að sá umsækjandi yrði ráðinn, sem væri að öðrum skilyrðum uppfylltum líklegastur til að ná bestum árangri í stjórnun skólans í samvinnu við hann sjálfan. Þótti ekki hafa verið sýnt fram á að ómálefnaleg sjónarmið hefðu legið að baki tillögu skólastjóra eða haft áhrif á afgreiðslu skóla- og menningarnefndar og að lokum bæjarráðs og bæjarstjórnar. Var þó fallist á að umfjöllun nefndarinnar hefði átt að vera vandaðri. Var S sýknaður af bótakröfum J.