Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lög: Lög um breytingu á lögum um gjaldeyrismál og tollalögum, með síðari breytingum. nr. 78/2010
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem vísað var frá dómi kröfu X og Y um að úrskurðað yrði að tiltekin rannsóknaraðgerð S væri ólögmæt og að lokað yrði fyrir aðgang að gögnum á haldlagðri tölvu og öllum afritum eytt. Þar sem Hæstiréttur hafði þegar komist að þeirri niðurstöðu að S hefði verið heimilt að grípa til aðgerða til að öðlast aðgang að upplýsingum á haldlagðri fartölvu og að lögmæti afritunar þeirra yrði ekki borið undir dóm var fyrri kröfulið X og Y vísað frá héraðsdómi. Þá var síðari kröfulið X og Y vísað frá Hæstarétti þar sem S hafði ekki lengur í vörslum sínum tölvu þá eða gögn sem krafan laut að.
Í tengslum við rannsókn SÍ á ætluðum brotum X hf. o.fl. gegn lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál og reglum settum samkvæmt þeim, var m.a lagt hald á bókhaldskerfi X hf. á grundvelli dómsúrskurðar þess efnis. Síðar kom í ljós að aðgangur SÍ að kerfinu hafði verið takmarkaður og hluti bókhaldsgagnanna læstur. Vegna þessa virkjaði SÍ svokallaðan varaaðgang að bókhaldskerfinu til að fá fullan aðgang að því. Í málinu kröfðust X hf. o.fl. þess að rannsóknaraðgerðin yrði dæmd ólögmæt og að SÍ yrði gert að loka fyrir aðganginn aftur og eyða öllum afritum sem kynnu að hafa verið gerð af gögnum á hinu lokaða svæði. Í úrskurði héraðsdóms, sem staðfestur var með vísan til forsendna í Hæstarétti, var kröfu X hf. o.fl. um ólögmæti rannsóknarathafnarinnar vísað frá héraðsdómi þar sem athöfnin var þegar afstaðin. Þá var hafnað kröfu X hf. o.fl. um að SÍ yrði gert að loka fyrir aðganginn aftur og eyða afritum af gögnum, enda hafði heimild SÍ til að skoða bókhaldsgrunninn ekki verið bundin takmörkunum. Þá var jafnframt talið að játa yrði SÍ nokkuð svigrúm til að meta hvort gögnin hefðu þýðingu fyrir rannsókn málsins.