Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 1. mgr. 20. gr. laga nr. 78/1997 — Lög um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar
Á árinu 2019 ákvað kirkjuþing að leggja niður Saurbæjarprestakall og í kjölfarið var embætti sóknarprests í Saurbæjarprestakalli, sem K hafði gegnt frá árinu 1996, sömuleiðis lagt niður. Í málinu krafðist K viðurkenningar á skaðabótaskyldu Þ vegna þess tjóns sem hann kvaðst hafa orðið fyrir vegna þessa. Til vara krafðist hann viðurkenningar á skaðabótaskyldu vegna þess tjóns sem hann kvaðst hafa orðið fyrir vegna þeirrar ákvörðunar biskups Íslands að hafna ákvörðun hans um að fara á lögmælt eftirlaun í framhaldi af því að honum var boðið embætti prests í Garða- og Hvalfjarðarstrandarprestakalli. Að því frágengnu krafðist K viðurkenningar á skaðabótaskyldu vegna þess tjóns sem hann kvaðst hafa orðið fyrir sökum þeirrar ákvörðunar biskups Íslands að hafna ákvörðun hans um að taka tilboðinu um prestsembætti í Garða- og Hvalfjarðarstrandarprestakalli. Landsréttur taldi að málsmeðferðin sem leiddi til ákvörðunar kirkjuþings um niðurlagningu Saurbæjar- prestakalls hefði verið lögmæt og byggst á lögmætum og málefnalegum grundvelli, og að hið sama gilti um ákvörðunina sem á eftir fylgdi um niðurlagningu sóknar- prestsembættisins. Þá taldi Landsréttur að þar sem K hafði ekki verið fluttur milli embætta samkvæmt 1. mgr. 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, heldur hefði embætti hans verið lagt niður, hefði aldrei getað komið til álita að hann ætti tilkall til eftirlaunaréttinda samkvæmt 4. mgr. 20. gr. stjórnarskrárinnar. Að lokum taldi Landsréttur að viðbrögð Þ við því þegar K kvaðst í byrjun september 2019 vilja taka boði um embætti prests, sem Þ hafði gefið K frest til 10. apríl 2019 til að svara, hefðu ekki verið í ósamræmi við meginreglu stjórnsýsluréttar um réttmætar væntingar eða reglu um meðalhóf. Voru skilyrði skaðabótaábyrgðar því ekki talin uppfyllt og Þ sýknað af öllum kröfum K.
Stefnandi var skipaður sóknarprestur í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd árið 1996 og gegndi því embætti enn á árinu 2019 þegar kirkjuþing ákvað að leggja niður Saurbæjarprestakall. Embætti stefnanda var þá lagt niður og prestsetrið í Saurbæ. Stefnanda var synjað um að fara þá á eftirlaun, en honum var boðið nýtt prestsembætti sem til varð við þessa breytingu. Þegar stefnandi þáði embættið var honum tilkynnt að það stæði honum ekki lengur til boða og var það embætti síðar auglýst. Stefnandi höfðar málið til viðurkenningar á skaðabótaskyldu stefnda vegna þess tjóns sem hann hafi orðið fyrir vegna þessara ákvarðana stefnda, Þjóðkirkjunnar. Fallist var á kröfu stefnanda um viðurkenningu á bótaskyldu stefnda vegna tjóns sem hlaust af því að stefnandi fékk ekki það embætti sem honum hafði verið boðið og hann hafði þegið.