Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lagagrein: 3. gr. laga nr. 77/2000 — Lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga

Hæstiréttur birt 12. desember 2017

707/2017

Ásthildur Lóa Þórsdóttir og Hafþór Ólafsson (Þórður Heimir Sveinsson hdl) gegn Arion banka hf (Karl Óttar Pétursson hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu Á og H um að felld yrði úr gildi nauðungarsala á tiltekinni fasteign þeirra sem fram fór að kröfu A hf. Á og H héldu því fram að við byrjun uppboðs á fasteigninni hefði ekki verið leitað boða í fasteignina og ekkert boð hefði komið fram þrátt fyrir að það kæmi fram í bókun í gerðabók sýslumanns. Um þetta vísuðu Á og H til þess að gerð hefði verið hljóðupptaka á síma Á og kæmi þetta hvergi fram. Hefði því ekkert boð verið gert í eignina við byrjun uppboðsins og sýslumanni af þeim sökum borið að fella nauðungarsöluna niður, sbr. 1. mgr. 34. gr. laga nr. 90/1991. Vegna þessara málsástæðna Á og H ákvað Hæstiréttur að gefa aðilunum kost á að leggja fram nánar tiltekin gögn. Af þessu tilefni afhenti A hf. Hæstarétti ljósrit úr gerðabókinni sem bar ekkert með sér sem stutt gæti staðhæfingar Á og H um hvað þar hefði gerst. Taldi rétturinn að ekki yrði slegið föstu að áðurnefnd hljóðupptaka gæfi rétta mynd af því sem fram fór umrætt sinn. Á og H hefðu ekki neytt þess kosts sem þeim var gefinn á að afla vitnisburðar um þessi efni. Að því gættu hefðu Á og H ekki axlað sönnunarbyrði fyrir staðhæfingum sínum gagnstætt ákvæði 3. mgr. 71. gr. laga nr. 91/1991 sem leiddi til þess að byggja yrði á því sem fulltrúi sýslumanns færði í gerðabók. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Hæstiréttur birt 19. janúar 2012

248/2011

Guðjón Magnússon (Guðmundur Birgir Ólafsson hrl) gegn EJS ehf og Magnúsi Steinari Norðdahl (Anton Björn Markússon hrl)

G krafði E ehf. og M um miskabætur þar sem af hálfu E ehf. hefði verið farið inn á einkanetfang hans og skoðaðir tölvupóstar, sem E ehf. hefði svo hagnýtt í þágu dómsmáls. Þá krafðist G að E ehf. og M yrðu látnir sæta refsingu samkvæmt 228. gr., sbr. c-lið 19. gr. almennra hegningarlaga. Hæstiréttur vísaði refsikröfu G sem og kröfum hans á hendur M frá héraðsdómi þar sem framsetning krafnanna í stefnu hefði ekki fullnægt tilteknum stafliðum 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Þá taldi Hæstiréttur að héraðsdómara hefði borið að kveðja til meðdómsmenn til þess að leysa úr málsástæðum aðila sem kröfðust sérkunnáttu. Þar sem það hefði ekki verið gert var héraðsdómur ómerktur og þeim þáttum málsins, sem ekki hafði verið vísað frá héraðsdómi, vísað heim í hérað til meðferðar og dómsálagningar á ný.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. nóvember 2010

E-8545/2009

Guðjón Magnússon (Guðmundur Birgir Ólafsson hrl) gegn EJS ehf og Magnúsi Steinarr Norðdahl (Gunnlaugur Úlfsson hdl)
Lykilorð: Miskabætur. Vinnulaunamál.

Stefnandi krafði fyrrum vinnuveitanda og framkvæmdastjóra hans um greiðslu miskabóta vegna brots á trúnaði í vinnusambandi aðila. Taldi stefnandi að framkvæmdastjórinn eða aðrir starfsmenn vinnuveitandans hefðu brotist inn á einkanetfang stefnanda. Þá krafðist stefnandi þess að stefndu yrðu dæmdir til refsingar vegna brota á 228. gr. almennra hegningarlaga. Stefndu voru sýknaðir í málinu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. nóvember 2010

E-8543/2009

Ægir Vopni Ármannsson (Guðmundur Birgir Ólafsson hrl) gegn EJS ehf og Magnúsi Steinarr Norðdahl (Gunnlaugur Úlfsson hdl)

Stefnandi krafði fyrrum vinnuveitanda og framkvæmdastjóra hans um greiðslu miskabóta vegna brots á trúnaði í vinnusambandi aðila. Taldi stefnandi að framkvæmdastjórinn eða aðrir starfsmenn vinnuveitandans hefðu brotist inn á einkanetfang stefnanda. Þá krafðist stefnandi þess að stefndu yrðu dæmdir til refsingar vegna brota á 228. gr. almennra hegningarlaga. Stefndu voru sýknaðir í málinu.