Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lög: Lög um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 38 15. maí 1990, með síðari breytingum. nr. 75/2003

Landsréttur birt 14. ágúst 2018

619/2018

A (Sveinn Sveinsson lögmaður) gegn B (Sigurður Jónsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem tekin var til greina krafa B um að umgengni hans við dóttur hans og A yrði komið á með aðfarargerð. Var talið að A hefði á margvíslegan hátt tálmað umgengni B við barn sitt þrátt fyrir úrskurði sýslumanns og dómsmálaráðuneytis um umgengni B og barnsins. Þá væri ekkert sem benti til þess að aðstæður föður til að taka á móti barninu í umgengni væru ekki fullnægjandi og ekkert fram komið sem gæfi til kynna að umgengni væri andstæð hagsmunum barnsins eða þörfum þess, sbr. 43. gr. barnalaga nr. 76/2003.

Hæstiréttur birt 11. júní 2015

833/2014

Málaflokkur: Barnaréttur

K og M deildu um forsjá tveggja sona sinna. Í héraðsdómi var talið að það samræmdist best högum drengjanna að M færi með forsjá þeirra. Byggði sú niðurstaða einkum á því að eldri drengurinn lagðist eindregið gegn því að fara til K, mikilvægi þess að bræðurnir yrðu saman og þess að M væri líklegri en K til að tryggja rétt þeirra til umgengni við það foreldri sem færi ekki með forsjá. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um forsjá eldri drengsins en að því er laut að forsjá þess yngri leit rétturinn til þess að hann hefði lengst af verið í umsjá K og tengdur henni. Að virtum niðurstöðum dómkvadds matsmanns yrði K talin hæfari uppalandi en M sem hefði ítrekað með framgöngu sinni látið deiluna hafa skaðleg áhrif á drengina. Væri sú hegðun til þess fallin að valda alvarlegri togstreitu hjá drengjunum og mikilli andlegri vanlíðan. Þótti hagsmunum yngri drengsins því betur borgið með því að K yrði falin forsjá hans, en hæfni hennar til að fara með forsjána þótti í þessu tilliti vega þyngra en að drengirnir ælust upp saman.