Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 98. gr. laga nr. 75/1981 — Lög um tekjuskatt og eignarskatt
Í málinu deildu aðilar um það hvort skattyfirvöldum hefði verið heimilt að ákvarða H tekjuviðbót á gjaldárinu 2000, vegna tekjuársins 1999, að fjárhæð 20.049.947 krónur vegna ávinnings er H hlaut af því að skipta á hlutabréfum í hlutafélaginu Í fyrir jafnháan hlut í hlutafélaginu N. Talið var að um hefði verið að ræða skattskyldar tekjur sprottnar af vinnusamningi H, sbr. 1. tl. A liðar 7. gr. laga nr. 75/1981, nú laga nr. 90/2003. Í málinu lá fyrir skýrsla um verðmæti F hf. og dótturfélags þess sem runnu saman við N hf. á árinu 1999 og höfðu skattyfirvöld stuðst við þær upplýsingar vegna mats á verðmæti hlutabréfa í N hf. Ekkert í málinu benti til þess að tekjuviðbótin hefði verið ofákvörðuð samkvæmt viðmiðun skattyfirvalda en af verðmætaskýrslunni væri ljóst að H hefði haft umtalsverðan fjárhagslegan ávinning af skiptunum. Þar sem H hafði ekki gert grein fyrir tekjunum í skattframtali árið 2000, sbr. 2. mgr. 60. gr. laga nr. 75/1981, væri skattyfirvöldum rétt að beita 25% álagi á vantalinn skattstofn H, sbr. 2. mgr. 108. gr. laga nr. 90/2003. Þá var jafnframt staðfest niðurstaða héraðsdóms um 2,5% álag samkvæmt 1. mgr. 121. gr. laga nr. 75/1981, sbr. 1. mgr. 122. gr. laga nr. 90/2003.
Íslenska ríkið sýknað af kröfu stefnanda um að fella úr gildi úrskurð yfirskattanefndar, en fellt var niður 25% álag á tekjuviðbót sem stefnanda hafði verið ákvarðað.