Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 74. gr. laga nr. 75/1981 — Lög um tekjuskatt og eignarskatt

Hæstiréttur birt 24. október 2002

143/2002

Eignarhaldsfélag Hörpu hf (Ólafur Gústafsson hrl) gegn Kristni Guðmundssyni, Jónínu Gunnarsdóttur, Gunnari Rúnari Kristinssyni, Hilmari Kristinssyni, Guðmundi Má Kristinssyni og Ölmu Dís Kristinsdóttur (Hanna Lára Helgadóttir hrl)

E hf. keypti allt hlutafé K og fjölskyldu hans í fyrirtækinu K ehf. Þar sem E hf. taldi að ársreikningur félagsins hefði ekki gefið rétta mynd af fjárhag þess höfðaði það mál til heimtu skaðabóta eða afsláttar vegna kaupa á fyrirtækinu. Var annars vegar um að ræða ágreining um verðmæti vörubirgða, sem E hf. taldi ofmetið, og hins vegar ábyrgð á því að í ársreikningnum hefði ekki verið getið um ógreiddar orlofsskuldbindingar. Fallist var á það með héraðsdómi, sem skipaður var sérfróðum meðdómendum, að í kaupsamningi aðila hefði E hf. látið undir höfuð leggjast að kanna nánar þau gögn um verðmæti vörubirgða sem honum voru fengin og gáfu tilefni til rannsóknar, sbr. 47. gr. þágildandi laga nr. 39/1922 um lausafjárkaup. Hefðu K og fjölskylda hans því hvorki vanrækt upplýsingaskyldu sína né sýnt af sér aðra saknæma háttsemi við gerð kaupsamningsins. Hins vegar var talið ósannað að K og fjölskylda hans hefðu gefið um það upplýsingar fyrir kaupin að ógreiddar orlofsskuldbindingar vegna áunnins orlofs starfsmanna hefðu ekki verið færð í ársreikning fyrirtækisins. Var K og fjölskyldu hans því sýknuð af kröfu E hf. um skaðabætur eða afslátt en gert að greiða umræddar orlofsskuldbindingar.