Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 4. mgr. 59. gr. laga nr. 75/1981 — Lög um tekjuskatt og eignarskatt
L ehf., sem gerði út bát til fiskveiða, stefndi íslenska ríkinu og krafðist þess að ákvörðun skattstjóra, sem staðfest var með úrskurði yfirskattanefndar, um endurákvörðun á reiknuðu endurgjaldi eiganda L ehf. vegna vinnu í þágu félagsins á rekstrarárinu 2002, yrði ógilt. Laut ágreiningur aðila einkum að því hvort nægileg lagastoð væri fyrir ákvæði í reglum ríkisskattstjóra um reiknað endurgjald vegna starfa á því ári, en samkvæmt því skyldi reiknað endurgjald vera 40% af aflaverðmæti báts. Samkvæmt 2. mgr. liðar A.1. í 7. gr. þágildandi laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignarskatt með síðari breytingum skyldi maður sem vann við eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi telja sér til tekna eigi lægra endurgjald fyrir starf sitt en hefði hann innt það af hendi fyrir óskyldan eða ótengdan aðila. Sama gilti meðal annars um vinnu við atvinnurekstur lögaðila, þar sem viðkomandi maður var í ráðandi stöðu vegna eignar- eða stjórnunaraðildar. Í 1. mgr. 59. gr. laganna, sbr. 28. gr. laga nr. 133/2001, var kveðið á um að ríkisskattstjóri skyldi við upphaf hvers tekjuárs setja reglur um reiknað endurgjald, en við ákvörðun á lágmarki endurgjaldsins skyldi höfð hliðsjón af „raunverulegum tekjum fyrir sambærileg störf.“ Talið var að íslenska ríkið hefði ekki vísað til neinnar viðmiðunar, sem stutt gæti að raunverulegar tekjur sjómanna fyrir sambærileg störf á þessum tíma hafi samsvarað 40% af heildarverðmæti afla. Var því ekki talið sýnt fram á að þessi viðmiðun hafi haft næga stoð í áðurnefndu ákvæði 1. mgr. 59. gr. laga nr. 75/1981. Var ákvörðun skattstjóra, sem staðfest var með úrskurði yfirskattanefndar, því ógilt.
Ómerktur var úrskurður yfirskattanefndar og skattstjórans í Vestfjarðaumdæmi vegna ákvörðunar um hækkun launa eiganda smábáts.Taldi dómurinn að viðmiðunarregla ríkisskattstjóra um að reiknað endurgjald og greidd laun skyldu ekki vera lægri en 40% af aflaverðmæti báts ætti ekki lagastoð og færi í bága við 1. mgr. 77. gr. stjórnarskrár.