Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

6 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 33. gr. laga nr. 73/1997 — Skipulags- og byggingarlög

Hæstiréttur birt 26. apríl 2012

523/2011

Hvalfjarðarsveit (Páll Arnór Pálsson hrl) gegn Solveigu, K. Jónsdóttur, Salvöru, Jónsdóttur, Áslaugu, Jónsdóttur og Védísi Jónsdóttur (Ívar Pálsson hrl)
Lykilorð: Skipulag. Fasteign. Skaðabætur.

H var gert að greiða eigendum jarðarinnar M bætur á grundvelli 1. mgr. 33. gr. þágildandi skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, vegna rýrnunar á verðmæti jarðarinnar sem talin var vera sennileg afleiðing af gildistöku deiliskipulags fyrir lóð úr aðliggjandi jörð sem skipulögð var undir svínabú. Var talið að lyktarmengun frá svínabúinu gagnvart jörðinni M væri veruleg og mun meiri en almennt mætti gera ráð fyrir til sveita þar sem stundaður væri landbúnaður.

Hæstiréttur birt 22. mars 2012

516/2011

Hjörtur Þór Hauksson (Magnús Björn Brynjólfsson hrl) gegn Fjallabyggð (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl)
Lykilorð: Skipulag. Fasteign. Innlausn.

Með nýju aðalskipulagi, sem samþykkt var á árinu 2007, var flugvöllurinn á Ó felldur út af skipulagi en H hafði á árinu 1987 fengið leyfi til byggingar flugskýlis við flugvöllinn. Í málinu krafðist H þess að F leysti til sín flugskýlið og greiddi honum innlausnarverð sem byggði á matsgerð dómkvadds matsmanns. Féllst Hæstiréttur á kröfu H um að F innleysti flugskýlið þar sem breytt skipulag væri ástæða þess að H gæti ekki lengur nýtt það eins og hann ætlaði þegar hann byggði það og breytingin væri til þess fallin að rýra verðgildi flugskýlisins. Á hinn bóginn var hafnað kröfu H um að F væri gert skylt að greiða honum innlausnarverð á grundvelli matsgerðar þar sem sú krafa væri ekki í samræmi við ákvæði 3. mgr. 33. gr. þágildandi skipulagslaga nr. 73/1997 um skyldu matsnefndar eignarnámsbóta til að ákveða kaupverð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. júlí 2010

E-5243/2010

Hjörtur Þór Hauksson gegn Fjallabyggð, kveðinn og upp svohljóðandi
Lykilorð: Innlausn. Skaðabætur.

Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um að honum yrði gert skylt að innleysa flugskýli á flugvellinum á Ólafsfirði, sem hafði verið aflagður. Ennfremur sýknaður af varakröfu um skaðabætur vegna þess að flugskýlið nýttist ekki sem slíkt, eftir að flugvöllurinn var lagður niður.